Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 02:01 0 0°C
Laxárdalsh. 02:01 0 0°C
Vatnsskarð 02:01 0 0°C
Þverárfjall 02:01 0 0°C
Kjalarnes 02:01 0 0°C
Hafnarfjall 02:01 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 24. febrúar 2017 - kl. 15:11
Opnir dagar í Blönduskóla

Það var mikið um að vera í Blönduskóla í síðustu viku en þar voru opnir dagar alla vikuna.

Nemendur á yngsta stigi fengu kynningu á stafi Björgunarfélagsins Blöndu en nemendur fengu meðal annars ferð með snjóbíl félagsins, skoðuðu aðstöðu þess og fengu kynningu á nauðsynlegum búnaði björgunarfélagsmanns. Nemendur tóku þátt í fjölbreyttum tilraunum hjá brjálaða vísindamanninum Erlu. Í jóga og púslsmiðju snerist allt um slökun og notalegheit í afslöppuðu umhverfi sem gott var að geta leitað í þegar uppábrotið er mikið. Í leiklistarsmiðju kynntu nemendur sér stutt ævintýri og leikgerðu svo. Í Disneysmiðju skoðuðu nemendur Disneybækur, innihald og uppbyggingu þeirra. Þeir sömdu svo sögu í sameiningu og myndskreyttu. Urðu þetta að hinum fallegustu myndabókum.

Skemmtilegur endir á vikunni var að bjóða foreldrum/forráðamönnum að sjá afrakstur nemenda og var boðið upp á flottar veitingar.

Krakkarnir á miðstigi bökuðu, þæfðu, sungu, dönsuðu, tóku viðtöl, sögðu fréttir, lásu og fóru í jóga alla vikuna. Þeir fengu heimsókn frá Óla Ben. íþróttakennara og félaga í Björgunarfélaginu Blöndu og slökkviliðinu. Hann fræddi krakkana bæði um Björgunarfélagið og Brunavarnir A-Hún og slökkviliðið. Páll, ritstjóri Feykis, kom líka í heimsókn með fræðslu um Feyki.

Á föstudeginum voru ekki lengur sömu verkefni og hina daga vikunnar, heldur var farið í íþróttahúsið og dansar æfðir fyrir árshátíðina. Svo var líka farið í vettvangsferð í Björgunarfélagið og á slökkvistöðina. Í lok dags var sýning fyrir foreldra og ættingja þar sem þeir fengu að sjá hvað krakkarnir eru búnir að gera í þessari viku og auðvitað var boðið upp á ljúffengar heimabakaðar súkkulaðibitakökur.

Vika nemenda á unglingastigi snerist að miklu leyti um undirbúning fyrir árshátíð þeirra sem fram fór á föstudagskvöld. Þeir litu þó upp frá þeim æfingum og dönsuðu, unnu fjölbreytt verkefni í tengslum við rafmagn, um himingeiminn, um risaeðlur og tengsl tónlistar og samfélagsfræði. Þá gáfu nokkrir nemendur aflögðum hlutum framhaldslíf með því að endurnýta þá og bjuggu til pennaveski, púða og alls kyns buddur.

Á föstudagskvöld var svo hin árlega árshátíð Blönduskóla. Þar var sýnt leikritið Af unglingum og fleira fólki í leikstjórn Jófríðar Jónsdóttur. Að venju var glæsilegt kökuhlaðborð og hin heimsfræga Blönduvision söngvarakeppni. Átta nemendur spreyttu sig á sex lögum og var það Kristjana Diljá, nemandi í 10. bekk sem sigraði. Að lokum var svo dansað fram á nótt.

Þessi vika var mjög skemmtileg, verkefnin fjölbreytt og lærdómsrík og gaman að sjá hversu vel sýningar nemenda voru sóttar. Árshátíðin stendur alltaf fyrir sínu og er hluti af föstum hefðum í samfélaginu sem íbúar eru duglegir að sækja.  

 

Höf. mbb
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið