Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:13 0 0°C
Laxárdalsh. 10:13 0 0°C
Vatnsskarð 10:13 0 0°C
Þverárfjall 10:13 0 0°C
Kjalarnes 10:13 0 0°C
Hafnarfjall 10:13 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Snjólaug Íslandsmeistari
Snjólaug Íslandsmeistari
Þórey, Snjólaug og Eva
Þórey, Snjólaug og Eva
Stefán, Hákon og Guðlaugur Bragi.
Stefán, Hákon og Guðlaugur Bragi.
Fréttir | 15. ágúst 2017 - kl. 09:25
Snjólaug endurheimti Íslandsmeistaratitilinn
Frá Markviss

Snjólaug María Jónsdóttir úr Skotfélaginu Markviss endurheimti Íslandsmeistaratitil kvenna í Skeet á Íslandsmeistaramótinu sem fram fór um nýliðna helgi. Mótið var að þessu sinni haldið á skotíþróttasvæði Skotíþróttafélags Suðurlands við Þorlákshöfn. Aðstæður á keppnisdegi voru nokkuð erfiðar, breytilegur vindur og birtuskilyrði.

Eftir undankeppnina leiddi Snjólaug í kvennaflokki með 51 dúfu en á eftir henni komu Helga Jóhannsdóttir (SIH), Eva Ósk Skaftadóttir (SR) og Dagný Huld Hinriksdóttir (SR) allar með 47 dúfur og fimmta var Þórey Inga Helgadóttir (SR) með 33 dúfur.

Það var því ljóst að Snjólaug hafði landað Íslandsmeistaratitli í 1 fl. kvenna og því aðeins spurning hvernig færi í úrslitum. Eftir slæma byrjun náði Snjólaug sér á strik í úrslitunum og eftir harða baráttu við Þóreyju Ingu sigldi hún sigrinum í höfn. Í þriðja sæti hafnaði Eva Ósk Skaftadóttir.

Snjólaug er því handhafi beggja íslandsmeistaratitlanna í haglagreinum þetta árið en fyrr í sumar vann hún titilinn í Nordisk Trap og setti í leiðinni Íslandsmet.

Í karlaflokki var hörkukeppni milli Stefáns Örlygssonar (SKA),Guðlaugs Braga Magnússonar (SA) og Hákons Þórs Svavarssonar (SFS). Svo fór að Hákon bar sigur úr bítum, Stefán hafnaði í öðru sæti og Guðlaugur Bragi í því þriðja.

Bikarmót STÍ í Skeet fer svo fram á skotsvæði SR á Álfsnesi um næstu helgi og er það síðasta STÍ mót sumarsins. Mikil spenna er í bikarkeppninni bæði í karla og kvennaflokki og verður áhugavert að fylgjast með um næstu helgi.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið