Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:42 0 0°C
Laxárdalsh. 04:42 0 0°C
Vatnsskarð 04:42 0 0°C
Þverárfjall 04:42 0 0°C
Kjalarnes 04:42 0 0°C
Hafnarfjall 04:42 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 17. október 2017 - kl. 09:45
Svæðisfundur DMP - Húnavatnssýslur

Markaðsstofa Norðurlands boðar til DMP fundar í Eyvindarstofu á Blönduósi þriðjudaginn 24. október næstkomandi frá klukkan 9:30-15:00. Undanfarna mánuði hefur Markaðsstofa Norðurlands unnið að gerð áfangastaðaáætlunar fyrir Norðurland. Verkefnið (DMP) snýst um að skipuleggja og samhæfa þróun og stýringu á öllum þeim þáttum sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þ.m.t. þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis.

Markmið fundarins er að fara yfir nokkur atriði sem tengjast þessari vinnu.  Á fundinum verður ákveðið hver forgangsverkefni hagsmunaaðila á svæðinu verða og farið verður yfir markaðsáherslur svæðisins. Því er mikilvægt fyrir alla að mæta sem vilja taka þátt í að þróa ábyrga ferðaþjónustu á sínu svæði.

Nánari upplýsingar veita Björn H. Reynisson bjorn@nordurland.is og Sigurður Líndal Þórisson selasetur@selasetur.is í síma 462-3300. Hægt er að skrá sig á funinn hér.

 

Nánar um DMP verkefnið:

Ábyrg þróun ferðaþjónustu á Norðurlandi
Þann 23. mars síðastliðinn gengu Markaðsstofa Norðurlands og Ferðamálastofa frá samningi um eitt stærsta verkefni í íslenskri ferðaþjónustu sem gengur út á gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (e. Destination Management Plan) fyrir landshlutann Norðurland. Ferðamálastofa og Stjórnstöð ferðamála hafa leitt verkefnið og síðan samið við markaðsstofur landshlutana að halda um vinnunna á verkefninu.  Í verkefnið eru lagðar 100 milljónir fyrir alla landshluta.

Verkefninu er ætlað að gera heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamála á svæðinu. Með þessu heildstæða ferli er tryggt að þróun ferðamála sé unnið í sátt við umhverfið, íbúa og ferðaþjónustufyrirtæki svæðisins, sem tryggi bestu upplifun ferðamannsins. Þetta verkefni mun auðvelda opinbera ákvörðunartöku sem tengjast meðal annars uppbyggingu þjónustu, skipulagsmálum, aðgangsstýringu og markaðsáherslum.

Hagsmunaaðilar DMP
Lykil hagsmunaaðilar verkefnisins verða ferðaþjónustufyrirtæki og sveitarfélög á viðkomandi svæðum. Aðrir hagsmunaaðilar eru þeir sem beint eða óbeint hafa hag af ferðaþjónustu á viðkomandi svæði.

Svæði Markaðsstofu Norðurlands er mjög stórt eða um 36 þús. ferkílómetrar með 28 þéttbýliskjörnum í 19 sveitarfélögum.  Var því ákveðið að skipta Norðurlandi sem er skilgreint sem eitt DMP svæði og þar verði undir 4 skilgreind vinnusvæði til að einfalda vinnuna og gera ferlið skýrara. Horft var til stöðu ferðaþjónustunnar á svæðinu öllu og ákvað stýrihópur verkefnisins eftirfarandi fjögur vinnusvæði sem eru undir DMP svæði Norðurlands:

A- og V-Hún
Skagafjörður og Eyjafjörður (Tröllaskagi)
Mývatn - Húsavík - Þingeyjarsveit (Demantshringurinn)
Norðurhjarasvæði

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið