Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:39 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:39 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:39 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:39 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:39 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:39 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í lok síðasta mánaðar var haldinn vinnufundur íbúa í Húnaþingi vestra um framtíðarskipan skólamála í sveitarfélaginu til næstu 30 ára. Fundurinn skiptist í kynningu, tvær umræðulotur, matarhlé og samantekt. Kynnt var rýnivinna fjölmenns hóps allra hagsmunaaðila skólasamfélagsins sem unnin hefur verið frá haustbyrjun. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra og þar kemur fram að fundurinn hafi verið vel sóttur og afar gagnlegur.
Á fundinum voru hugmyndir um framtíðarskipan skólamála lagðar fyrir umræðuhópa á sex borðum þar sem annars vegar var kallað eftir sýn íbúa á innra skipulagi framtíðarskólahúsnæðis og hins vegar hvort og hvaða aðrar stofnanir gætu átt samleið í húsnæði skólans. Skýrar hugmyndir komu fram um flest atriði sem hafa ber í huga við viðbyggingu við skólann, í hvaða forgangsröð á að framkvæma og hvaða stofnanir koma til greina með starfsemi í húsnæði skólans.
Niðurstöður hafa verið dregnar saman og verða kynntar sveitarstjórn og fara svo í almenna kynningu í kjölfarið þar sem íbúum gefst aftur tækifæri að hafa áhrif á undirbúning viðbyggingar við grunnskólann.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |