Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 03:21 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 03:21 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 03:21 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 03:21 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 03:21 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 03:21 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Íbúafundur um deiliskipulagstillögu hafnarsvæðisins sem haldinn var á Hvammstanga í gær var vel sóttur en um 120 manns mættu á fundinn. Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfræðingur hjá Landmótun kynnti skipulagstillöguna og Guðný Hrund Karlsdóttir fór yfir valkostagreiningu vegna staðsetningar fjölbýlishúss og stöðuna á húsnæðismarkaðnum í dag. Þá fór Páll Gunnlaugsson arkitekt yfir tegund og hönnun íbúða í fyrirhuguðu fjölbýlishúsi. Eftir framsögur voru fyrirspurnir úr sal.
Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra. Þar segir að mikið hafi verið rætt um staðsetningu fyrirhugaðs fjölbýlishúss og að skiptar skoðanir um hana. Einnig hafi verið rætt um fornleifar, smábátahöfn, bílastæði og fleira. Þá segir að gagnlegar spurningar og ábendingar hafi komið fram sem verði nýttar við áframhaldandi vinnu.
Skipulagið var fyrst auglýst síðastliðið vor en vegna athugasemda og ábendinga var ákveðið að gera breytingar á skipulaginu og auglýsa aftur að undangengnum íbúafundi. Helstu breytingar frá fyrri tillögu eru að lóðir á Tanga eru felldar út, lóðamörkum breytt, ný rútustæði, möguleg göngubrú og endurbætt gögn vegna íbúðalóðar og fornleifaskráningar.
Gert er ráð fyrir að tillagan verði afgreidd af sveitarstjórn þann 8. febrúar næstkomandi og fari í framhaldi af því í auglýsingu og þá málsmeðferð sem gildir samkvæmt skipulagslögum.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |