Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:52 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:52 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:52 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:52 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:52 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:52 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Leikhópurinn Lotta sýnir leiksýninguna Galdrakarlinn í Oz á Hvammstanga mánudaginn 19. mars og á Blönduósi þriðjudaginn 20. mars. Báðar sýningarnar fara fram í félagsheimilum bæjanna og hefjast klukkan 17:30. Flestir þekkja söguna af ævintýralegu ferðalagi Kansasstúlkunnar Dórótheu og Tótó, hundinum hennar, til ævintýralandsins Oz.
Þar kynnist hún heilalausu Fuglahræðunni, hjartalausa Pjáturkarlinum og huglausa Ljóninu auk þess sem hún lendir í klóm vondu Vestannornarinnar. Dóróthea og vinir hennar lenda í allskyns hremmingum og þurfa að leita á náðir Galdrakarlsins ógurlega í Oz. Spurningin er núna hvort Galdrakarlinn getur hjálpað Dórótheu að komast aftur heim til sín og vinum hennar að fá það sem þá svo sárlega vantar.
Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur en síðastliðin ellefu sumur hefur hópurinn ferðast með útileiksýningar út um allt land. Á hverju ári setur hópurinn upp nýjar sýningar, sýningar sem allar hafa slegið í gegn og eru enn spilaðar af geislaplötum á fjöldamörgum heimilum.
Núna hefur Lottan ákveðið að dusta rykið af þessum gömlu sýningum og endurvekja þær, tíu árum síðar og nú innandyra. Hópurinn byrjar á byrjuninni, á Galdrakarlinum í Oz sem er fyrsta verkið sem sérstaklega var skrifað fyrir Lottu.
Miða má nálgast á tix.is eða í gegnum leikhopurinnlotta.is.
Leikstjóri – Ágústa Skúladóttir
Höfundur leikgerðar – Ármann Guðmundsson
Lög og söngtextar – Ármann Guðmundsson, Baldur Ragnarsson, Eggert Hilmarsson og Snæbjörn Ragnarsson.
Leikarar – Anna Bergljót Thorarensen, Baldur Ragnarsson, Huld Óskarsdóttir, Rósa Ásgeirsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |