Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:44 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:44 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:44 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:44 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:44 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:44 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Myndlistakonan Hólmfríður Dóra Sigurðardóttur í Vatnsdalshólum verður gestalistamaður á Jónsmessugleði Grósku 2019 sem haldin verður í ellefta sinn, fimmtudaginn 20. júní næstkomandi frá klukkan 19:30-22:00. Fjölbreytileg listaverk verða til sýnis við Strandstíginn í Sjálandshverfi Garðabæjar. Auk félaga úr Grósku, myndlistarfélagi Garðabæjar, koma gestalistamenn frá öðrum bæjarfélögum og myndlistarfélögum og er þetta annað árið í röð sem Hólmfríður Dóra tekur þátt. Sýnd verða málverk á striga, innsetningar og önnur verk og hægt verður að fylgja fjölbreytilegum þráðum því þemað er að þessu sinni „Þræðir".
Jónsmessugleði Grósku teygir sig inn í Jónshús til málverkasýningar eldri borgara og til ungu listamannanna í Skapandi sumarstarfi sem sýna vestast við Strandstíginn og verða líka með önnur listatriði. Ungir sem aldnir láta ljós sitt skína enda er Jónsmessugleði fyrir fólk á öllum aldri. Auk sjálfrar sýningarinnar verða margir skemmtilegir listviðburðir á dagskrá, svo sem söngur, tónlist, leiklist og fleira og Gróska býður upp á veitingar. Að venju lýkur Jónsmessugleði Grósku svo með óvæntum gjörningi kl. 22.
Gróska stendur fyrir Jónsmessugleði í samstarfi við Garðabæ. Allir eru velkomnir.
Facebook síða Jónsmessugleðinnar er https://www.facebook.com/groska210/.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |