Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 02:35 0 0°C
Laxárdalsh. 02:35 0 0°C
Vatnsskarð 02:35 0 0°C
Þverárfjall 02:35 0 0°C
Kjalarnes 02:35 0 0°C
Hafnarfjall 02:35 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 18. júlí 2019 - kl. 10:15
Húnavakan er hafin

Húnavaka, bæjar- og fjölskylduhátíð Blönduósinga er hafin og stendur yfir alla helgina. Dagskráin er fjölbreytt að vanda og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Fólk er hvatt til þessa að kynna sér hana vel en í henni er að finna nýja viðburði sem ekki hafa verið áður á Húnavöku eins og náttúruyoga, fjallahjólakennsla og danskennsla. Tvær glæsilegar tónlistaveislur verða haldnar um helgina, kvöldvaka með varðeldi og tveir stórdansleikir. Í dag ætla bæjarbúar að plokka og gera fínt í bænum.

Hægt er að kynna sér dagskrána hér og einnig á Facebook síðu Húnavöku.

Þeir sem mæta á Blönduós í dag geta í rólegheitunum skoðað fjölmörg setur og söfn á staðnum eins og Heimilisiðnaðarsafnið sem er einstakt á Íslandi, Minjastofuna og Vatnsdælu á refli sem eru í Kvennaskólanum eða kíkt á uppstoppaðan ísbjörn í Hafíssetrinu sem er í Hillebrantshúsinu í gamlabænum. Á Blönduósi er frábær aðstaða fyrir fólk að fara í sund. Svæðið við sundlaugina og grunnskólann er paradís krakkanna. Þar er ærslabelgur, sparkvöllur, hjólabretta rampar eða skate park, körfuboltavöllur, stór og mikill klifurkastali og aparóla. Í kvöld verður Blö Quiz spurningakeppni í Félagsheimilinu en það hefur árlegur viðburður Húnavöku undanfarin ár.

Stærstu viðburðirnir á morgun föstudag eru að valin fyrirtæki á staðnum bjóða gestum og gangandi í heimsókn og má þar nefna Vilko/Prima, Ístex og SAH Afurðir. Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu hafmeyjuna á Káratúni og svo verða tvær veislur annað kvöld, ein matarveisla og ein tónlistarveisla. Matarveislan er kótelettukvöld í Eyvindarstofu. Boðið verður upp á þykkar og feitar kótelettur sérvaldar frá SAH afurðum. Tónlistarveislan fer fram í Fagrahvammi. Þeir tónlistarmenn sem koma fram eru Friðrik Dór Jónsson, Hildur Kristín Stefánsdóttir og Magni Ásgeirsson og um kvöldið spilar hljómsveitin Á móti sól í Félagsheimilinu.

Segja má að laugardagurinn sé stóri dagur Húnavökunnar. Stærstu viðburðir þann daginn eru Golfmót á Vatnahverfisvelli, Fjallahjólakennsla og stutt fjallahjólaferð fyrir alla fjölskylduna og Blönduhlaup USAH. Skotfélagið Markviss verður með opinn dag á skotsvæðinu og síðdegis fer fram mót til heiðurs Höskuldi B. Erlingssyni. Farin verður söguganga um gamla bæinn, danskennsla verður í íþróttahúsinu, markaðsstemning við Félagsheimilið, útsýnisflug, hestar á skólalóðinni – teymt undir börnum, dorgað við höfnina, náttúruyoga stund í Hrútey, náttúruperlu Blönduósinga og margt margt fleira.

Hápunktur laugardagsins er Kvöldskemmtun í Fagrahvammi. Þar verða umhverfisverðlaun Blönduósbæjar veitt, tónlistarveisla og varðeldur. Á kvöldvökunni koma fram Gunni Helga, Gunni Óla og Einar Ágúst úr Skítamóral, Daði Freyr og hinn eini sanni Helgi Björns. Hljómsveitin Skítamórall spilar svo á balli í Félagsheimilinu seinna um kvöldið.

Á sunnudaginn verður hin árlega Prjónaganga úr gamla bænum og að Kvennaskólanum. Sápurennibraut verður sett upp í kirkjubrekkunni og bókamarkaður verður á Héraðsbókasafninu þar sem Gunni Helga les upp úr bók sinni Barist í Barcelona.

Frábær skemmtun framundan á Blönduósi alla helgina.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið