Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:09 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:09 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:09 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:09 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:09 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:09 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra vill beina því til ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar að raforkuverð í dreifbýli og þéttbýli verði jafnað. Um þýðingarmikið byggðamál sé að ræða og löngu tímabært að íbúar hinna dreifðu byggða sitji við sama borð og íbúar í þéttbýli hvað raforkuverð varði.
Raforkuverð var til umfjöllunar á síðasta stjórnarfundi SSNV sem haldinn var 3. september síðastliðinn. Þar kom fram að frá því að skipulagsbreytingar voru gerðar á raforkukerfinu árið 2005 hafi fyrirtæki sem annast dreifingu á raforku í þéttbýli og dreifbýli haft tvær mismunandi gjaldskrár, aðra fyrir dreifingu raforku í þéttbýli og hina fyrir dreifingu í dreifbýli. Þrátt fyrir niðurgreiðslu frá ríkinu, með svonefndu dreifbýlisframlagi, sé raforkuverð í dreifbýli enn hærra en raforkuverði í þéttbýli.
Þá kom fram á fundinum að frá árinu 2015 hafi dreifbýlisframlagið verði fjármagnað með svonefndu jöfnunargjaldi, sem sé lagt á alla almenna raforkunotkun. Til að ná fullri jöfnun raforkuverðs fyrir alla landsmenn sé áætlað að þurfi viðbótarframlag sem nemi um 900 milljónum króna á ári.
Í fundargerð fundarins segir: „Stjórn SSNV tekur undir tillögu stjórnar SASS í bókun frá 546. fundar hennar dags. 16. maí sl. um að nýta megi hluta af arði af rekstri Landsvirkjunar sem framlag til niðurgreiðslu raforkuverðs. Ástæða er til að benda á að í gegnum tíðina hefur verið rætt um að þegar skuldir Landsvirkjunar hafi verið greiddar niður muni arður af henni nýtast í þágu landsmanna. Það liggur beinast við að sá arður verði nýttur á sviði raforkumála og beinlínis í þágu landsbyggðarinnar, þar sem allar virkjanir Landsvirkjunar standa. Um þýðingarmikið byggðamál er að ræða og löngu tímabært er að íbúar hinna dreifðu byggða sitji við sama borð og íbúar í þéttbýli hvað varðar raforkuverð og í raun hálfhjákátlegt að þeir sem búa næst uppsprettu raforkunnar, nærri virkjununum eða undir raflínum sem flytja orkuna á suðvesturhornið, skuli greiða hærra verð fyrir orkuna en þeir sem fjær búa.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |