Fréttir
Blönduóslistinn (E)
Blönduóslistinn (E)
Fréttir | 27. apríl 2006 - kl. 21:22
E-listi lagður fram í Blönduósbæ
Blönduóslistinn – sameinað afl

Blönduóslistinn (E), sameinað afl Blönduósinga hefur verið lagður fram vegna komandi sveitarstjórnarkosninga þann  27. maí nk. Málefnaskrá listans kemur fram á næstu dögum en yfirmarkmið hans er að vinna að bættum hag og velferð bæjarfélagsins, óháð flokkspólitískum línum. Oddviti listans er Valgarður Hilmarsson, núverandi forseti bæjarstjórnar, í öðru sæti er Héðinn Sigurðsson, læknir, og í því þriðja er Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson, framkvæmdastjóri. Fjórða sætið skipar Jóna Fanney Friðriksdóttir, bæjarstjóri á Blönduósi sem jafnframt er bæjarstjóraefni listans og það fimmta skipar Nína Margrét Pálmadóttir, sjúkraliði.  Heiðurssæti E-listans skipar Sigursteinn Guðmundsson, fyrrverandi yfirlæknir.

 

Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem myndaður er þverpólitískur listi til sveitarstjórnarkosninga í Blönduósbæ.

 

Eftirtaldir aðilar skipa Blönduóslistann (E):

 

1. Valgarður Hilmarsson, forseti bæjarstjórnar

2. Héðinn Sigurðsson, læknir

3. Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson, framkvæmdastjóri

4. Jóna Fanney Friðriksdóttir, bæjarstjóri

5. Nína Margrét Pálmadóttir, sjúkraliði

6. Zophonías Ari Lárusson, verslunarstjóri

7. Helga Kristín Gestsdóttir, iðjuþjálfi

8. Þorgils Magnússon, húsasmiður

9. Brynhildur Erla Jakobsdóttir, grunnskólakennari

10. Þórhallur Barðason, tónlistarkennari

11. Erna Björg Jónmundsdóttir, deildarstjóri

12. Þórður Pálsson, ráðunautur

13. Sigurður Jóhannesson, framkvæmdastjóri

14. Sigursteinn Guðmundsson, fyrrv. yfirlæknir


rzg
Senda grein Senda grein     Prenta grein (ný síða opnast) Prenta grein

Til baka

 

©2010 Húnahornið

huni@huni.is

 

VEFURINN ER KEYRÐUR Á SMALA xL