Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:43 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:43 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:43 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:43 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:43 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:43 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í samantekt Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir átakshóp stjórnvalda vegna óveðursins í desember segir að Veðurstofan, Vegagerðin, sveitarfélögin og fyrirtækin í landshlutanum hafi staðið sig vel í undirbúningi fyrir óveðrið. Það hafi orðið til þess að íbúar og ferðafólk hafi ekki verið á ferli eftir að veðrið skall á sem komið hafi í veg fyrir óþarfa álag á viðbragðsaðila. Það sama eigi ekki við um þær stofnanir sem reki mikilvægustu innviðina.
Átakshópurinn bað samtökin að leggja mat á það hvernig fyrirtæki og stofnanir sem reka mikilvæga innviði voru undirbúin fyrir óveðrið, hvernig unnið var í samræmi við viðbragðsáætlanir, hvernig til tókst að framfylgja viðbragðsáætlun, almennt mat á því hvað betur hefði mátt fara og fyrirhugaðar aðgerðir í framhaldi af því.
Í svari samtakanna segir að Veðurstofan hafi miðlað með góðum fyrirvara greinargóðum upplýsingum um möguleika á hættuástandi. Vegagerðin hafi lokaði vegum snemma sem komið hafi í veg fyrir að fólk væri á ferð á vegum úti. Sveitarfélög hafi lokuðu skólum og öðrum stofnunum í tíma áður en veður skall á og fyrirtæki í landshlutanum hafi lokað sömuleiðis almennt í tíma. Þá hafi sveitarfélögin sem reki hitaveitur og aðra innviði gripið til ráðstafana og reynt að tryggja heitt vatn og koma í veg fyrir tjón, færi allt á versta veg.
Í svari samtakanna segir jafnframt að almennt séð megi segja að þær stofnanir sem reki mikilvægustu innviðina hafi því miður ekki staðið eins vel að undirbúningi fyrir veðurofsann. Undantekningin á því sé Landsvirkjun sem mannaði Blönduvirkjun með fimm mönnum svo hægt yrði að stýra virkjuninni handvirkt færi allt á versta veg. Hvorki RARIK né Landsnet hafi sent mannskap á svæðið. Lögreglan hafi ekki tryggt mönnun á öllum svæðum, t.d. hafi enginn lögreglumaður verið í Vestur-Húnavatnssýslu á meðan veðrið gekk yfir. Þá hafi almannavarnarnefnd í Húnavatnssýslum ekki komið saman áður en veðrið skall á en þess hefði þurft.
Samtökin leggja til nauðsynlegar aðgerðir til úrbóta en þær eru þessar:
- Efling starfsstöðva í landshlutanum á ný, aðallega Landsnet, RARIK og Vegagerðin. Í því felst aukinn mannafli og bættur tækjakostur en hann er orðinn gamall og úr sér genginn. Einmenningsstöðvar með úr sér genginn tækjabúnað mega sín lítils við þær aðstæður sem sköpuðust. Í veðrinu var fólki ítrekað stefnt í hættu við vinnu sína og slíkt er ótækt. Auk viðbótar mönnunar á starfsstöðvum verða stofnanir/fyrirtæki sem reka innviði á svæðinu að senda auknar bjargir á svæðið (mannskap og tæki) þegar útlit er fyrir eins slæm veður og raunin varð í desember.
- Tryggja þarf mönnun lögreglu í öllum landshlutanum.
- Einnig þarf að tryggja að í þéttbýliskjörnum þar sem ekki eru fullmannaðar heilsugæslustöðvar séu heilbrigðisstarfsmenn sem geta veitt aðstoð ef til slysa kemur.
- Tryggja þarf að viðbragðsaðilar eigi sæti í almannavarnarnefndum og að þær séu virkar.
- Almennt er þörf á aðgerðaráætlunum í landshlutanum fyrir aðstæður sem sköpuðust.
- Í einhverjum tilfellum er þörf á að koma upp betri aðstöðu fyrir aðgerðastjórn í héraði.
- Allar stofnanir þurfa að vinna viðbragðsáætlanir og að þær séu aðgengilegar íbúum/forsvarsmönnum sveitarfélaga svo vitað sé hvaða ferli fer í gang við hættuástand.
Samantekt Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir átakshóp stjórnvalda vegna óveðursins í desember er hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |