Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:25 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:25 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:25 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:25 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:25 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:25 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir til leigu félagsheimilið Fellsborg, tjaldsvæðið í Höfðahólum og menningarhúsið Bjarmanes. Þá er auglýst eftir aðilum til þess að sjá um skólamötuneyti Höfðaskóla. Mögulegt er að óska eftir leigu á öllum þessum einingum, tveimur saman eða hverri fyrir sig, að því er segir á vef Skagastrandar. Umsóknum skal skilað á skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 17. apríl nk. þar sem m.a. komi fram hugmyndir umsækjanda um rekstur hverrar einingar eða allra saman.
Kaffi- og menningarhúsið Bjarmanes á Skagaströnd er fallegt steinhús, byggt 1913 en var allt endurbyggt 2004 og hefur þann einstaka anda sem einkennir mörg gömul hús. Það stendur miðsvæðis með góðu útsýni yfir höfnina og Húnaflóann.
Félagsheimilið Fellsborg var byggt árið 1965. Í húsinu eru tveir misstórir salir, sem nýttir hafa verið til skemmtanahalds, leiksýninga, ættarmóta, fatamarkaða og fleira. Bókasafn sveitarfélagsins er á neðri hæð sem og félagsstarf eldri borgara. Kvenfélagið Eining og UMF Fram hafa þar einnig aðstöðu. Við húsið er íþróttavöllur staðarins og einnig ágæt aðstaða fyrir tjöld og tjaldvagna sem hefur einkum verið nýtt í tengslum við ættarmót sem haldin eru í húsinu. Eldhús Fellsborgar var nýlega gert upp á glæsilegan máta. Framkvæmdir utandyra hófust á húsinu sl. sumar og munu þær klárast fyrir haustið.
Tjaldsvæðið í Höfðahólum er á skjólsælum og rólegum stað efst í byggðinni og horfir á móti sólu. Í miðju svæðisins er gamall bæjarhóll þar sem bærinn Höfðahólar stóðu. Svæðið er í fallegu umhverfi og nýtur skjóls til norðurs og austurs af lágum klettahólum sem kallaðir eru Hólaberg. Runnar skipta svæðinu upp í nokkra reiti sem skapa þægileg umhverfi fyrir tjöld, húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Rafmagnstenglar eru á nokkrum stöðum. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir börn í spennandi náttúrlegu umhverfi. Í þjónustuhúsinu eru sturta, vatnssalerni, þvottavél og aðstaða til uppþvotta.
Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is. Öllum umsóknum verður svarað. Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 455-2700 eða á netfanginu sveitarstjori@skagastrond.is.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |