Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:13 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:13 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:13 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:13 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:13 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:13 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
„Almennt séð má segja að varaafl sé langt frá því að vera nægilegt í landshlutanum. Í einhverjum tilfellum kemur það til af því að stofnanir sem reka raforkukerfið hafa stórlega vanmetið stöðu kerfisins og staðhæft að varafls sé ekki þörf. Hafa bæði stofnanir/fyrirtæki og bændur fengið slíka ráðgjöf.“ Þetta segir í svari Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra við spurningu átakshóps stjórnvalda vegna óveðursins í desember og finna má í samantekt sem gerð var fyrir átakshópinn.
Átakshópurinn bað samtökin að leggja mat á tiltækt varaafl í landshlutanum og stýringu þess við aðstæður eins og sköpuðust í óveðrinu. Þá var beðið um tillögur til úrbóta. Í svari samtakanna segir m.a. að ekki sé tiltækt varafla á öllum heilbrigðisstofnunum og er Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga nefnd sem dæmi. Einnig segir að ekki séu varaaflsstöðvar í öllum þéttbýliskjörnum eða aðgengi að þeim tryggt. Á Skagaströnd sé t.d. varaflsstöð en lykill að henni sé geymdur á Blönduósi. Ekki var fært á milli þessara staða í óveðrinu. Þá segir að almennt séð séu fyrirtæki ekki með tiltækt varaafl.
Samtökin leggja til eftirfarandi aðgerðir til úrbóta:
- Bæta þarf afhendingaröryggi raforku á svæðinu bæði með styrkingu flutningslína á svæðið og dreifikerfis.
- Tryggja þarf nægilegt varaafl í landshlutanum:
- Allir þéttbýlisstaðir hafi varaafl og þar sem þörf er á skömmtun rafmagns liggi fyrir áætlanir um með hvaða hætti skömmtun fer fram.
- Allar heilbrigðisstofnanir, lögregla og aðrir viðbragðsaðilar hafi varaafl.
- Tryggja þarf framboð minni rafstöðva sem hægt er að flytja með skömmum fyrirvara þangað sem þeirra er þörf, svo sem á svæði sem eru án hitaveitu og til kúabænda sem margir urðu fyrir stórtjóni í veðrinu.
- Þar sem varaaflstöðvar eru til staðar þarf að tryggja að á viðkomandi stað sé aðgengi að þeim, þær prófaðar reglulega, vélum við haldið og kunnátta til að ræsa þær til staðar.
- Tryggja þarf aðgengi að olíu til að knýja varaaflstöðvar. Birgðatankar eru ekki lengur til staðar á svæðinu og olíubirgðir að mestu takmarkaðar við birgðatanka afgreiðslustöðva. Tryggja þarf að hægt sé að afgreiða olíu á þessum stöðvum við þær aðstæður sem sköpuðust.
Samantekt Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir átakshóp stjórnvalda vegna óveðursins í desember er hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |