Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:18 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:18 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:18 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:18 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:18 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:18 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Endurmenntun Landbúnaðarháskóli Íslands, í samstarfi við Sauðfjárræktarfélag Vatnsnesinga, heldur námskeiðið „Fóðrun og fóðurþarfir sauðfjár“ miðvikudaginn 18. mars næstkomandi frá klukkan 11-17 í félagsheimilinu Hamarsbúð á Vatnsnesi. Námskeiðið er sérstaklega ætlað sauðfjárbændum og þeim sem tengjast sauðfjárrækt en er einnig opið öðrum. Farið verður yfir helstu atriði varðandi fóðurþarfir og fóðrun sauðfjár á mismunandi tímabilum og aldursskeiðum.
Horft er á árið í heild, bæði beit og innifóðrun, og farið yfir möguleg viðbrögð/fyrirbyggjandi aðgerðir vegna áhrifa breytilegs árferðis á heyskap og beit. Stuðst verður jöfnum höndum við nýjustu rannsóknaniðurstöður og sígildari fróðleik. Kennsla: Jóhannes Sveinbjörnsson dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands Verð á námskeiðið er kr. 28.000. Skráning er hér.
Námskeið um endurheimt staðargróðurs á framkvæmdasvæðum og ferðamannastöðum
Þá heldur Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands námskeiðið „Endurheimt staðargróðurs á framkvæmdasvæðum og ferðamannastöðum“ þriðjudaginn 17. mars næstkomandi klukkan 10-16 hjá Símey, Þórsstíg 4 á Akureyri. Námskeiðið er ætlað þeim sem koma að hönnun, framkvæmd og skipulagningu hverskonar framkvæmda sem raska gróðri og jarðvegi.
Námskeiðið nýtist vel fulltrúum sveitarfélaga, landeigendum, verktökum, hönnuðum, aðilum í ferðaþjónustu og áhugamannafélögum. Kennsla byggist á fyrirlestrum, umræðum og örverkefnum. Kennsla: Ása L. Aradóttir prófessor við LbhÍ, Haukur Jónsson deildarstjóri hjá Vegagerðinni, Magnea Magnúsdóttir umhverfis- og landgræðslustjóri Orku náttúrunnar og Rúnar Jónsson vegtæknir hjá Vegagerðinni.
Skráning og nánari upplýsingar um námskeiðið er hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |