Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:04 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:04 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:04 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:04 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:04 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:04 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Fimm Covid-19 smit hafa verið staðfest á Norðurlandi vestri og eru þau öll í Húnaþingi vestra. Hálfgert útgöngubann var sett þar á í gærkvöldi þegar öllum íbúum var gert að sæta svokallaðri úrvinnslusóttkví. Það þýðir að aðeins einn af hverju heimili má sækja aðföng og að hámarksfjöldi þeirra sem má koma saman er fimm.
Sveitarfélagið hefur opnað fyrirspurnarform á heimasíðu sinni þar sem íbúar geta sent inn fyrirspurnir sem varða aðgerðir almannavarna í gærkvöldi. Reynt verður að svara öllum spurningum eins fljót og kostur er.
„Mikið álag er á aðgerðastjórn, vettvangsstjórn og starfsmönnum sveitarfélagsins því er þess farið á leit við íbúa að senda fyrirspurnir inn rafrænt sé þess kostur. Eftir sem áður er hægt að hafa samband símleiðis ef brýna nauðsyn ber til,“ segir á vef Húnaþings vestra.
Af Covid-19 faraldrinum er það að frétta að samkvæmt nýjum upplýsingum af www.covid.is hafa nú 568 smit verið staðfest og er það fjölgun um 92 frá því í gær. Í einangrun eru 546, 12 á sjúkrahúsi og 22 er batnað. Alls eru 6.340 í sóttkví en 1.066 hafa lokið sóttkví. Fjöldi sýna sem tekin hafa verið eru 10.118.
Smit hafa nú verið staðfest í öllum landshlutum nema á Austurlandi en þar eru 77 í sóttkví. Á Norðurlandi vestra eru 364 í sóttkví. Á Norðurlandi vestra eru fimm smit og 299 í sóttkví, á Vestfjörðum er eitt smit og 176 í sóttkví, á Vesturlandi eru tvö smit og 210 í sóttkví, á Suðurlandi eru 56 smit og 707 í sóttkví, á Suðurnesjum eru 27 smit og 268 í sóttkví og á höfuðborgarsvæðinu eru 464 smit og 4.171 í sóttkví.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |