Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:57 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:57 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:57 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:57 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:57 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:57 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Feykir kom út í gær, stútfullur af fróðlegu og skemmtilegu efni að vanda. Í aðalefni blaðsins er fjallað um Ernuna, skipsflakið á Borgarsandi við Sauðárkrók, saga þess rifjuð upp og fjöldi mynda fylgir með sem sýnir skipið í mismunandi brúkun og ástandi. Glæst skip sem endaði í ljósum logum.
Jón Ólafur Sigurjónsson er í viðtali en fyrir skömmu stofnaði hann, ásamt Hugrúnu Sif Hallgrímsdóttir konu sinni, einu útfararstofuna á Norðurlandi vestra. Kristján Bjarni Halldórsson skrifar grein um íþróttatengda ferðaþjónustu í Skagafirði og er golfið honum einkar hugleikið. Rúnar Rúnarsson, formaður knattspyrnudeildar Tindastóls er í viðtali og segir frá Covid áhrifum og hvernig framhaldið gæti litið út í boltanum.
Þórey Edda Elísdóttir segir frá því hvernig var að greinast með kórónaveiruna og áfallið sem því fylgdi og Valdimar Guðmannsson svarar spurningum í RABB-A-BABB. Á baksíðu má svo sjá magnaðar myndir Róberts Daníels Jónssonar sem fanga vorstemninguna listavel.
Meðal fastra þátta má nefna áskorandapennann en um hann heldur Ingvar Björnsson á Hólabaki, Vísnaþáttur Guðmundar, sá 758. í röðinni og matarþáttur þar sem Þuríður Þorláksdóttir matreiðir mikið góðgæti með börnunum. Feykifín afþreying er fyrir þá krossgátu- og sudokuþyrstu auk skemmtilegrar vísnagátu, Tilvitnun vikunnar og því sem er ótrúlegt, en kannski satt. Hvaða farfugla ertu búin að sjá í vor er spurning vikunnar.
Feykir er eina svæðisfréttablaðið á Norðurlandi vestra og kemur út 48 sinnum á ári. Blaðið fer til áskrifenda og er selt í lausasölu í landshlutanum. Stefna Feykis er að gefa út vandað svæðisfréttablað jafnframt því að halda úti vefmiðli á jákvæðum nótum.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |