Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:18 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:18 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:18 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:18 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:18 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:18 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Feykir kom út í dag en í blaðinu má finna ýmislegt gagnlegt og gott frá Norðurlandi vestra. Til að mynda er viðtal við Sigurð Guðjónsson, gjarnan kenndur við Sjávarborg í Skagafirði, en hann lét af störfum eftir 43 ára starf hjá KS og tengdum fyrirtækjum nú um mánaðamótin. Merkilegt þykir að þrír ættliðir náðu að vinna saman á Vélaverkstæðinu en þeir feðgar Þorgeir sonur Sigga og Jóhann Þór sonarsonur unnu með honum sl. ár.
Kristinn Hugason skrifar um hesta og menn og er íslenska gæðingakeppnin tekin fyrir á ný en talið er að fyrsta keppnin hafi farið fram 1944. Birta Þórhallsdóttir, á Hvammstanga skrifar áskorendapistil vikunnar og vísnaþátturinn er á sínum stað.
Arnþrúður Heimisdóttir, túristabóndi og hrossaræktandi, svarar spurningum Bók-Haldsins en hún segir að bækur, líkt og eðalvín og sérvitringar, batni með árunum.
Bændurnir á Þambárvöllum í Bitrufirði, Stefanía og Magnús, eru matgæðingar og gefa uppskrift að góðum fiskrétti og afar einföldu brauði.
Þá er Sibbi mættur með Mini-inn sinn en það tók nokkur ár að dubba hann upp, hagyrðingurinn Einar Kolbeins tekinn tali og myndir Róberts Daníels prýða baksíðuna.
Fríða Eyjólfs ritar leiðarann en þar eru á borð borin athyglisverðar samkomubannsspekúlasjónir. Rætt er við Ásgeir Braga, Ouse, en hann gerir það heldur betur gott í músíkinni og er tónlist hans sótt 1,4 milljón sinnum á Spotify á mánuði. Minningargrein um Álf Ketilsson er einnig að finna í blaðinu, aðsend grein Bergþors og Sigurðar Páls Miðflokksþingmanna og að sjálfsögðu eru fréttir sagðar af öllu Norðvestur svæðinu. Að lokum má nefna að stórlygarinn Jón tófusprengur á síðasta orðið að þessu sinni.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |