Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 18. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:10 0 0°C
Laxárdalsh. 12:10 0 0°C
Vatnsskarð 12:10 0 0°C
Þverárfjall 12:10 0 0°C
Kjalarnes 12:10 0 0°C
Hafnarfjall 12:10 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
17. maí 2024
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson
Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson
Fréttir | 02. júní 2020 - kl. 08:55
Nýtt og hærra fasteignamat
6,5% hækkun á Norðurlandi vestra

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 2,1% frá yfirstandandi ári og verður 9.429 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár Íslands fyrir árið 2021. Þetta er umtalsvert minni hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan þegar fasteignamat hækkaði um 6,1% á landinu öllu. Heildarfasteignamatið hækkar um 8,5% á Blönduósi og um 5% á Skagaströnd, um 2,6% í Húnaþingi vestra, um 1,9% í Húnavatnshreppi og um 1,6% í Skagabyggð.

Mest hækkun á Vestfjörðum
Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 2,2% en um 1,9% á landsbyggðinni. Þar af er mest hækkun á Vestfjörðum eða 8,2%, um 6,5% á Norðurlandi vestra, 3,5% á Austurlandi og um 2,2% á Suðurlandi, 1,9% á Norðurlandi eystra, um 0,4% á Vesturlandi, og lækkun um 0,5% á Suðurnesjum.

Af einstaka bæjarfélögum hækkar heildarfasteignamat mest á Ísafirði eða um 11,2%, um 8,8% í í Akrahreppi og 8,5% í Tálknafjarðarhreppi og á Blönduósi. Mest lækkun er í Skorradalshreppi og Sveitarfélaginu Vogum þar sem fasteignamatið lækkar um 3,6%.

Almennt eru litlar breytingar á aðferðarfræði fasteignamats á milli ára. Aðferð við lóðarmat var endurskoðuð auk þess sem hætt er að að nota sérstaka matsaðferð á búgarða. Einnig er verið að endurskoða hlunnindamat jarða og færa það til nútímahorfs. Að öðru leyti er helsta breytingin hagnýting á gervigreind sem styrkir núverandi aðferðarfræði og líkanagerð við fasteignamat.

Bætt framsetning á vef
Á vef Þjóðskrár Íslands www.skra.is má fletta upp breytingum á fasteignamati milli ára auk þess sem aukin áhersla hefur verið lögð á myndræna og notendavæna framsetningu á nýju fasteignamati. Þannig geta eigendur fasteigna og aðrir bæði kynnt sér breytingar á einstökum eignum sem og þróun á milli ára eftir landsvæðum og mismunandi tegundum eigna. Upplýsingar um breytingar á fasteignamati eru nú settar fram á kortagrunni en auk þess hefur verið þróuð ný vefsjá fyrir matssvæði íbúðarhúsnæðis, sumarhúsa og atvinnuhúsnæðis sem sýnir staðsetningu matssvæða og breytingar á milli ára.

Eigendur fasteigna geta frá 15. júní nálgast tilkynningarseðil um mat á eignum sínum í pósthólf sitt á www.island.is.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið