Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 18. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:36 0 0°C
Laxárdalsh. 13:36 0 0°C
Vatnsskarð 13:36 0 0°C
Þverárfjall 13:36 0 0°C
Kjalarnes 13:36 0 0°C
Hafnarfjall 13:36 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
17. maí 2024
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Mynd: asi.is
Mynd: asi.is
Fréttir | 04. júní 2020 - kl. 11:24
Vörukarfan hækkað um 15,6% í Kjörbúðinni

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um 2,3-15,6% á einu ári í átta verslunarkeðjum. Vörukarfan á að endurspegla almenn matarinnkaup meðal heimilis. Í sex verslunarkeðjum af átta hækkar vörukarfan um yfir 5%. Mest hækkaði vörukarfan í Kjörbúðinni eða um 15,6% og næst mest í Krambúðinni um 13,6%. Minnst hækkaði verðið í Tíu ellefu á tímabilinu, 2,3% og næst minnst í Iceland um 3,4%. Til samanburðar hækkaði verð á mat- og drykkjarvörum í vísitölu neysluverðs um 4,86% frá maí 2019- maí 2020. Sagt er frá þessu á vef ASÍ.

Töluverðar verðhækkanir má finna í öllum vöruflokkum en verð á grænmeti og ávöxtum hækkaði langmest á þessu 12 mánaða tímabili. Á eftir þeim vöruflokki má sjá mestar hækkanir í flokki brauðs og kornvara og hreinlætis- og snyrtivara. Minnstar verðhækkanir voru á sykri, súkkulaði, sælgæti og drykkjarvörum.

Þegar verð hjá lágvöruverðsverslununum er skoðað má sjá minnstar verðhækkanir í Bónus en þar hækkaði verð um 5,2% á meðan verð hækkaði um 7,9% í Nettó og 9% í Krónunni. Mestar verðhækkanir voru eins og fyrr segir í Kjörbúðinni 15,6% en verslanir í þeirri keðju eru staðsettar á mörgum stöðum á landsbyggðinni. Næst mest hækkaði verð í Krambúðinni um 13,6% en Krambúðirnar eru hverfisverslanir sem eru bæði staðsettar á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið