Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:14 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:14 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:14 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:14 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:14 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:14 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Fornt og áður óþekkt bæjarstæði hefur uppgötvast vegna riðuhreinsunar Matvælastofnunar á bænum Grófargili í nágrenni Varmahlíðar. Þar fannst öskuhaugur og í honum hnífsblað, hnífsskaft, ýmsir járngripir, dýrabein, snældusnúður og grjót í eldstæði. Fornminjarnar eru frá því vel fyrir árið 980 af gjóskulögum að dæma. Sagt er frá þessu á vef MAST.
Riða greindist á Grófargili fyrr á þessu ári. Allt fé var sent í brennslu og annað sem talið var geta borið smit grafið á staðnum. Sá staður sem Matvælastofnun taldi heppilegastan fyrir riðugröf var nærri gömlum húsarústum sem vitnað var í í örnefnaskrá. Ofan á rústunum stóð nautakofi sem þurfti að rífa og setja í riðugröf. Stofnunin hafði því samband við Minjastofnun sem fór fram á að fornleifafræðingur fylgdist með aðgerðum. Nautakofinn var rifinn án þess að raska rústunum.
Við gröft riðugrafar var fyrst gerður könnunarskurður í varúðarskyni sem leiddi í ljós mun eldri fornminjar, fornan öskuhaug. Aðgerðir voru stöðvaðar og fyrirhuguð riðugröf færð til. Við tók fornleifauppgröftur þar sem fornleifafræðingurinn fann fjölda muna, dýrabein og eldsprungna steina. Aðgerðum er lokið og verða fornleifarnar færðar til Þjóðminjasafnsins að lokinni skýrslugerð fornleifafræðings, að því er segir á vef MAST.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |