Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:41 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Húnaþing vestra auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs sveitarfélagsins. Ingibjörg Jónsdóttir sem gegnt hefur stöðunni sagði starfi sínu lausu nýverið. Sviðsstjóri heyrir beint undir sveitarstjóra og er staðgengill hans. Um er að ræða 100% starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Leitað er að einstaklingi sem hefur frumkvæði og aðlögunarhæfni að síbreytilegum aðstæðum og fjölbreyttum verkefnum. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið vel í liði, ásamt því að vera sjálfstæður í starfi. Viðkomandi þarf að vera skipulagður og hafa gott vald á íslenskri tungu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Staðgengill sveitarstjóra
- Umsýsla fundarboða, fundargerða og afgreiðsla erinda byggðarráðs og sveitarstjórnar
- Daglegur rekstur skrifstofu sveitarfélagsins
- Ábyrgð á uppfærslum á samþykktum, reglum og gjaldskrám sveitarfélagsins
- Fjármálastjórnun og úrvinnsla fjárhagsupplýsinga
- Ábyrgð á fjárhagsáætlanagerð og vinnu við ársreikninga
- Umsjón með menningar- og atvinnumálum í samstarfi við sveitarstjóra
Menntun og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
- Reynsla af rekstri og stjórnun
- Leiðtogahæfileikar
- Frumkvæði og skipulagshæfileikar
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti
- Hreint sakavottorð
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem í stuttu máli er gerð grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör taka mið af kjarasamningi BHM við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt samþykktum um stjórn sveitarfélagsins ræður sveitarstjórn sviðsstjóra. Samkvæmt jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |