Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:27 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:27 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:27 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:27 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:27 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:27 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Gönguhópur Blönduóss ætlar að ganga með Snjódrífunum sem arka nú yfir Vatnajökul en þær hvetja landsmenn til að ganga með þeim í sinni heimabyggð þá daga sem þær eru að ganga á jöklinum. „Við látum okkur ekki vanta í þetta verðuga verkefni,“ segir í tilkynningu frá Gönguhóp Blönduóss og verður gengið saman sem hér segir:
Fimmtudagur 11. júní: Bolabás. Hittast við Blönduóshöfn og kl. 17:00 verður lagt af stað út í Bolabás. Ferðin tekur um 1,5 klst og er vegalengd um 3,4 km, hækkun 46 m. Auðveld ganga.
Föstudagur 12. júní: Hnjúkar. Sameinast í bíla norðan við Íþróttamiðstöðina og leggjum af stað þaðan kl. 17:00. Alls 4 km og tekur um 1,5 klst. Ganga á flestra færi.
Laugardagur 13. júní: Núpar. Lagt af stað frá Höskuldsstaðakirkju kl. 14:00. Gengið upp á Hólsnúp, skoða stuðlabergið í blágrýtisfjallinu Stafanúpi og ganga svo niður norðan við Hrafnsnúp. Nokkuð þægileg ganga, tekur um 2 klst. og vegalengd ca. 5 km.
Sunnudagur 14. júní: Reykjanibba. Sameinast í bíla norðan við Íþróttamiðstöðina en þaðan verður lagt af stað kl. 11:00. Þessi ganga tekur um 3-4 klst og hækkun um ca. 600 m, vegalengd um 5 km . Meðalerfið ganga.
Mánudagur 15. júní: Giljárgljúfur. Sameinast í bíla norðan við Íþróttamiðstöðina kl. 17:00. Létt og skemmtileg gönguleið fyrir alla fjölskylduna, hækkun ca. 70 m og vegalengd innan við 2 km. Tekur um 1 klst. Margir fallegir fossar á leiðinni sem vert er að skoða.
Þriðjudagur 16. júní: Hólmavatn. Leggja bílum við afleggjarann að gömlu skíðalyftunni í Vatnahverfinu. Gangan hefst kl. 17:00. Létt ganga sem tekur um 2 klst; vegalengt um 4,5 km og lítil sem engin hækkun.
Hér má fylgjast með Snjódrífunum: https://www.facebook.com/lifskraftur2020/.
Til að styrkja þetta flotta verkefni sendið sms á 1900
LIF1000 = 1.000kr
LIF3000 = 3.000kr
LIF5000 = 5.000kr
LIF10000 = 10.000kr
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |