Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:38 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:38 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:38 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:38 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:38 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:38 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Viðskiptahraðallinn Til sjávar og sveita sækir Sauðárkrók heim föstudaginn 12. júní og býður áhugasömum að sækja stutta vinnustofu um þróun viðskiptahugmynda. Til sjávar og sveita býður upp á metnaðarfullan vettvang til vöruþróunar fyrir verkefni sem snúa að matvælaiðnaði, nýjum lausnum í landbúnaði og haftengdum iðnaði og betri nýtingu hráefna þar sem sjálfbærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi.
Hraðallinn, sem hefur göngu sína í annað sinn næsta haust, er einnig tilvalinn vettvangur fyrir þróun tæknilausna ætlaðar verslun og þjónustu, t.d. greiðslumiðlun, birgðastýringu, flutningi o.þ.h. sem snýr að því að koma vörum í hendur viðskiptavina. Hraðlinum er ætlað að hraða ferlinu frá því að hugmynd kviknar þar til vara er komin á markað.
Dagskráin er þessi:
Kynning á viðskiptahraðlinum Til sjávar og sveita
Sunna Halla Einarsdóttir, Icelandic Startups
Frumkvöðull deilir reynslu sinni af uppbyggingu fyrirtækis og þátttöku í viðskiptahraðli.
Hildur Magnúsdóttir, stofnandi Pure Natura
Viðskiptahugmyndir og mótun þeirra
Freyr Friðfinnsson, Icelandic Startups
Að loknum kynningum verður opið fyrir spurningar og spjall þar sem þátttakendum gefst jafnframt kostur á að kynna hugmyndir sínar stuttlega fyrir starfsmönnum Icelandic Startups, fá endurgjöf og leiðsögn um næstu skref. Léttar veitingar í boði.
Staður: Farskólinn, Faxatorgi á Sauðárkróki. Dagur: 12. júní. Tími: 12-14.
Viðskiptahraðallinn Til sjávar og sveita er samstarfsverkefni Icelandic Startups og Íslenska sjávarklasans. Bakhjarlar verkefnisins eru Matarauður Íslands, Nettó og Landbúnaðarklasinn.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |