Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:11 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:11 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:11 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:11 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:11 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:11 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ársreikningur Blönduósbæjar vegna ársins 2019 var samþykktur á sveitarstjórnarfundi á þriðjudaginn og var sveitarfélagið rekið með 23 milljón króna hagnaði. Rekstrartekjur námu 1.233 milljónum króna og hækkuðu um 15% milli ára. Rekstrargjöld námu 1.104 milljónum og hækkuðu um 14% milli ára. Rekstrarniðurstaða ársins fyrir afskriftir, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld nam 129 milljónum. Eigið fé í árslok 2019 nam 836 milljónum og eiginfjárhlutfallið 37%.
Veltufé frá rekstri nam 121 milljón á árinu samanborið við 90 milljónir árið 2018. Handbært fé frá rekstri nam 184 milljónir samanborið við 55 milljónir árið áður. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok 2019 nam 34 milljónum og hækkaði um 30 milljónir á árinu. Skuldir og skuldbindingar voru í árslok 2019, 1.449 milljónir en voru 1.409 milljónir í lok árs 2018, sem er aukning m.a. vegna lántöku til umtalsverðra fjárfestinga við Blönduskóla. Skuldahlutfall samkvæmt skilgreiningu í reglugerð fór úr 131% árið 2018 niður í 118% í árslok 2019 en skuldaviðmið samkvæmt skilgreiningu í reglugerð fór úr 106% árið 2018 niður í 95% í árslok 2019.
Í fundargerð sveitarstjórnar segir um ársreikninginn: „Af ofangreindu má sjá að rekstur Blönduósbæjar er mjög góður og hefur batnað á flestum sviðum, bæði með tilliti til afkomu og miðað við fjárhagsáætlun ársins 2019, ásamt viðaukum, meðal annars til þess að mæta mikilli uppbyggingu og fjölgun íbúa. Miklu máli skiptir að vinna vel með þann árangur til framtíðar.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |