Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:49 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:49 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:49 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:49 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:49 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:49 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í vikunni opna helstu laxveiðiár Húnavatnssýslna hver af annarri. Miðfjarðará opnar á morgun mánudag og Laxá á Ásum opnar á þriðjudag. Víðidalsá og Vatnadalsá opna laugardaginn 20. júní. Hrútafjarðará opnar 1. júlí og eins og fram hefur komið í fréttum opnaði Blanda 5. júní síðastliðinn. Laxveiðin í fyrra var sú sjöunda minnsta sem skráð hefur verið frá árinu 1974 og sú minnsta frá árinu 2000. Laxveiðimenn eru bjartsýnir með að meira veiðist í sumar.
Laxveiði minnkaði í öllum landshlutum í fyrra nema á Norðurlandi eystra og Austurlandi. Sumarið einkenndist öðru fremur af miklum og fordæmalausum þurrkum allt sumarið sem gerði aðstæður til veiða afar erfiðar, einkum í dragám á vestanverðu landinu sem eru mjög háðar úrkomu yfir sumarið. Sumarið í ár hefur farið öðruvísi af stað og víða er enn nægur snjór í fjöllum sem þýðir betri vatnsbúskap fyrir árnar.
Fjöldi veiddra laxa á Norðurlandi vestra var á bilinu 4.400-4.600 í fyrrasumar. Árið 2018 veiddust um 6.500 laxar, árið 2017 um 9.500 laxar og árið 2016 um 11.500 laxar. Árið 2015 veiddust tæplega 18.000 laxar á Norðurlandi vestra. Laxveiði í landshlutanum hefur því farið minnkandi fjögur ár í röð. Laxveiðin í fyrrasumar á Norðurlandi vestra var líklega sú fjórða lægsta síðan árið 2000. Vonir standa til að botninum sé náð og að tölur fari nú hækkandi.
Húnvetnsku laxveiðiárnar á listanum enduðu svona í fyrrasumar:
Miðfjarðará 1.606 laxar samanborið við 2.719 árið 2018.
Laxá á Ásum 807 laxar samanborið við 702 árið 2018.
Blanda 638 laxar samanborið við 870 árið 2018.
Vatnsdalsá 477 laxar samanborið við 551 árið 2018.
Víðidalsá 430 laxar samanborið við 558 árið 2018.
Hrútafjarðará 401 laxar samanborið við 360 árið 2018.
Svartá 57 laxar samanborið við 129 árið 2018.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |