Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:24 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:24 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:24 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:24 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:24 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:24 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Holtastaðakirkja fær 1,8 milljón króna styrk og Sveinsstaðaskóli 3 milljónir í styrk úr viðbótarúthlutun húsafriðunarsjóðs. Á vef Minjastofnunar segir að þáttur í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að vinna gegn samdrætti vegna kórónuveirufaraldursins hafi verið að veita 100 milljón króna viðbótarframlagi í húsafriðunarsjóð, sem nýta eigi til að veita styrki í atvinnuskapandi verkefni á svæðum sem verða fyrir hvað mestum efnahagslegum þrengingum vegna faraldursins. Fyrr á árinu úthlutaði sjóðurinn 304 milljónum til 228 verkefna.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu hafi ekki þótt raunhæft að opna fyrir umsóknir um ný verkefni, heldur ákveðið að líta til verkefna sem sótt var um styrki til á síðasta umsóknartímabili. Þeim var gefin einkunn með tilliti til eflingar atvinnulífs, samfélagslegt mikilvægi og gilda frá sjónarhóli minjavörslu.
Minjastofnun ákvað í samráði við húsafriðunarnefnd að veita styrki til 36 verkefna og er Holtastaðakirkja í Blönduósbæ og Sveinsstaðaskóli í Húnavatnshreppi þar á meðal eins og áður sagði. Holtastaðakirkja fékk fyrr á þessu ári úthlutað 4,3 milljónum í styrk úr sjóðnum í flokknum friðlýstar kirkjur.
Sjá nánar um viðbótarúthlutun styrkja húsfriðunarsjóðs hér.
Tengd frétt:
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |