Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:25 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:25 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:25 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:25 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:25 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:25 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Fertugasti og fyrsti árgangur Húna, ársrits Ungmennasambands Vestur-Húnvetningar er kominn út. Í ritinu, sem er rúmar 200 blaðsíður, eru frásagnir, viðtöl, ljóð og annar fróðleikur er tengist Húnaþingi vestra. Einnig er minnst látinna í sveitarfélaginu á árinu 2019 auk ítarlegra frétta úr hinum ýmsu byggðum sveitarfélagsins sem alls sjö fréttaritarar hafa skrásett.
„Forsíðuviðtalið“ er að þessu sinni við Brynju Bjarnadóttur á Hvammstanga og einnig er m.a. fjallað um sjúkrahúsið á Hvammstanga sem átti 100 ára afmæli á árinu.
Veg og vanda að útgáfu Húna hefur sex manna ritnefnd sem unnið hefur óeigingjarnt starf við útgáfuna. Ingi Bjarnason sem hefur verið eins konar ritstjóri undanfarin ár lætur nú af störfum í ritnefndinni og fær hann alúðarþakkir fyrir sitt framlag ásamt öðru ritnefndarfólki. Útgáfan er styrkt af Uppbyggingasjóði Norðurlands vestra.
Ritið er að berast áskrifendum þessa dagana. En það er einnig til sölu hjá verslun KVH, í Bókasafni Húnaþings vestra á Hvammstanga og í Riishúsi á Borðeyri. Eins er hægt að óska eftir áskrift á netfangið usvh@usvh.is.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |