Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:52 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:52 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:52 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:52 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:52 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:52 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í sumar stendur Handbendi Brúðuleikhús fyrir Sumarleikhúsi æskunnar í Húnaþingi vestra en þetta þriggja vikna verkefni er opið öllum börnum og ungmennum á aldrinum 7-18 ára. Sumarleikhúsið stendur yfir frá 27. júlí - 14. ágúst, er leikhús- og leiklistarsmiðja, og fer fram fjórum sinnum í viku.
Þátttakendur vinna allir saman ákveðin verkefni, en mestmegnis með þeim sem eru á svipuðum aldri að uppsetningu leikverka. Sýningarnar munu hver fyrir sig henta aldurshópnum sem þær flytur og sinna þörfum, áhuga og styrkleikum hvers hóps fyrir sig.
Á meðan að á verkefninu stendur læra þátttakendur um leikhús, kynna sér mismunandi leikhústækni, og setja upp sýningar sem sýndar verða almenningi við lok verkefnisins. Fagmenntað fólk mun vinna með þátttakendum að listsköpuninni.
Sýnt verður á endurbættu sviði Félagsheimilis Hvammstanga en þar er nú kominn upp nýr og góður tæknibúnaður. Fagmanneskja í leikhúshljóði og -ljósi aðstoðar þátttakendur við sýningarnar og mun kynna hverja þá sem áhuga kunna að hafa fyrir grunnatriðum ljós- og hljóðhönnunar, ásamt almennri nálgun á tækniatriði leikhússins.
Hver tími verður 2 klukkustunda langur, að pásum meðtöldum.
Þáttökugjald er 35.000 krónur í heild og allur kostnaður við sýninguna er þar innifalinn.
Skráning er nú hafin hér.
Sjá nánar á www.sumarleikhus.com.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |