Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 02:56 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 02:56 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 02:56 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 02:56 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 02:56 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 02:56 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Guðrún Helga Magnúsdóttir tók við sem formaður Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga á ársþingi sambandsins sem fram fór 15. júní síðastliðinn. Hún tók við af Reimari Marteinssyni, sem setið hefur í formannsstólnum síðastliðin sex ár. Guðrún Helga er meðal yngstu formanna sambandsaðila og aðildarfélaga Ungmennafélags Íslands en hún er 23 ára og búsett á Hvammstanga.
„Við tökum öll að okkur ýmislegt í sveitinni og leggjumst saman á eitt. Húnaþing er lítið en öflugt samfélag þar sem allir þekkja alla og vita hvernig á að nýta styrkleika fólks. Ég var opin fyrir því að koma í stjórnina, finnst gaman að vera í forystu og er að safna í reynslubankann,“ segir Guðrún Helga í tilkynningu frá UMFÍ.
Guðrún Helga er snögg að benda á að hún er aðflutt fyrir tíu árum. Þó eigi hún rætur að rekja til Miðfjarðar, þaðan sé faðir hennar, séra Magnús Magnússon og í sveitinni hafi hún haft annan fótinn í æsku. Hún er jógakennari og zumbakennari og er nýútskrifaður nuddari, með bakgrunn í körfubolta, fótbolta og spretthlaupum og viðurkennir að hún sé ágætlega aktív.
Fólk ánægt með nýjan formann
Sambandssvæði USVH er Húnaþing vestra, Miðfjörður og þar á meðal Hvammstangi. Innan USVH eru fimm aðildarfélög. Guðrún Helga situr í stjórn Ungmennafélagsins Grettis í Miðfirði ásamt tveimur öðrum konum og er hún gjaldkeri félagsins. Ungmennafélagið Grettir sér meðal annars um réttaballið í sveitinni og jólabingó og félagsvist á milli jóla og nýárs. Athygli vekur jafnframt að Guðrún Helga er ný í stjórn USVH. Guðrún segir aðdragandann að stjórnarsetunni hafa verið stuttan. „Kona sem vinnur með mér bað mig um að koma í stjórnina. Ég var opin fyrir því af því að hér gera allir allt,“ segir hún en bætir við að hún hafi ekki komist á þingið og ekki vitað niðurstöðuna strax.
„Daginn eftir var fólk sem ég hitti alltaf að óska mér til hamingju. Það kom mér á óvart því ég vissi ekki að fólk væri svona ánægt með að ég væri orðin formaður,“ segir hún.
Hvetja til þátttöku á Unglingalandsmót
Guðrún Helga er afar spennt fyrir komandi tíð í kjölfar ársþings USVH. „Húnaþing er afar liðlegt samfélag og allir til í að leggja af mörkum,“ segir hún og fer á sinn fyrsta stjórnarfund hjá USVH í næstu viku. „Þar leggjum við línurnar fyrir sumarið. Ég veit að við munum sjá um þríþraut á bæjarhátíðinni Eldur í Húnaþingi í júlí og svo ætlum við að hvetja börn og foreldra þeirra til að taka þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ á Selfossi um verslunarmannahelgina,“ segir Guðrún Helga.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |