Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 03:30 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 03:30 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 03:30 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 03:30 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 03:30 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 03:30 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Skjálfti af stærð 5,7 varð rúma 30 kílómetra norðaustur af Siglufirði klukkan 19:07 í kvöld. Hann er sá stærsti sem orðið hefur í skjálftahrinu sem hófst um hádegi á föstudaginn. Skjálftinn fannst víða á Norðurlandi en upptök hans eru talsvert fjær landi en fyrri skjálftar og því voru áhrifin ekki eins mikil inn til landsins að því er segir á vef Veðurstofu Íslands.
Starfsmenn frá Veðurstofunni og Náttúrufræðistofnun fóru í vettvangsflug með Landhelgisgæslunni seinni partinn í dag. Tilgangur ferðarinnar var meðal annars að kanna óstöðugleika í hlíðum og ummerki um skriðuföll á svæðinu. Flogið var yfir nyrsta hluta Tröllaskaga þar sem áhersla var lögð á að kanna þekkt jarðsigssvæði og hlíðar ofan vega og ofan við þéttbýli. Eins voru ummerki um hrunin í Gjögurfjalli og Hvannadalsbjargi skoðuð sérstaklega en neðan þeirra mátti sjá myndarlegar skriðudyngjur sem staðfesta að þar urðu skriður.
Á vef Veðurstofunnar segir að niðurstöður ferðarinnar hafi verið jákvæðar með tilliti til skriðufalla þar sem engin ummerki um stórfelldar sprungur hafi verið að finna á þessum svæðum og því engar sterkar vísbendingar um yfirvofandi stórfellt hrun af völdum stórra jarðskjálfta. Eins sáust engin ummerki um að stórar fyllur hefðu fallið úr hlíðum. Vegna mikillar óvissu um áframhaldandi þróun jarðskjálftavirkninnar er ekki þó ekki hægt að útiloka slíka atburði í framtíðinni, segir á vefnum. Á þeim stöðum þar sem auðvelt var að greina ummerki um skriður eða grjóthrun var yfirleitt um svæði að ræða þar sem mikið er jafnan af lausaefnum, hlíðar bratta og skriður þar algengar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |