Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:21 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:21 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:21 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:21 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:21 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:21 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Óvenju mikið er af hval í Húnaflóa og Skagafirði þetta sumarið en hann sækir í æti sem gæti verið smásíld. Hnúfubakar hafa sést alveg upp í landi við Blönduós, Hvammstanga og Sauðárkrók. Morgunblaðið fjallar um þetta í dag og rætt er við Sverri Daníel Halldórsson, líffræðing hjá Hafrannsóknarstofnun. Hann segir að mest hafi verið um hnúfubak en einnig hafi sést til hrefnu, höfrunga og hnísu.
Fram kemur að hnúfubakarnir smali síldinni í þéttar torfur með því að blása út ofti og mynda eins konar loftbólugirðingu í kringum torfuna. Þegar síldartorfan hefur þétt sig kafar hvalurinn og kemur síðan upp með opið ginið og gleypir síldina.
Í frétt Morgunblaðsins segir að hvalir hafi sést innarlega í Miðfirði í sumar og það teljist nýlunda að þeir sæki svo langt inn í fjörðinn. Eric dos Santos, líffræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, býr niðri við sjó á Hvammstanga og segist hann sjá hvali nánast á hverjum degi síðan einhvern tímann í maí. Mest sá hann fimm hnúfubaka í hóp í Miðfirði í sumar. „Ég hef búið á Hvammstanga síðan árið 2017 en hef ekki áður séð hvali stökkva jafn oft og í sumar. Þetta er áberandi meira hvalalíf en íbúar hér á svæðinu haf atekið eftir áður,“ segir Eric í samtali við Morgunblaðið í dag.
Sjá má ítarlegri umfjöllun um málið í Morgunblaðinu.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |