Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Sunnudagur, 12. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:06 0 0°C
Laxárdalsh. 10:06 0 0°C
Vatnsskarð 10:06 0 0°C
Þverárfjall 10:06 0 0°C
Kjalarnes 10:06 0 0°C
Hafnarfjall 10:06 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Fréttir | 15. júlí 2020 - kl. 13:25
Húnavakan að bresta á
Haldin dagana 17.-19. júlí á Blönduósi

Húnavaka, bæjarhátíð Blönduósinga, verður haldin í 17. sinn um helgina. Hátíðin hét áður Matur og menning og var fyrst haldin árið 2003. Árið 2006 var ákveðið að breyta nafninu og endurvekja hið góða og gilda nafn Húnavaka sem áratugum saman var fastur liður í menningarlíf Húnvetninga. Dagskrá Húnavöku er fjölbreytt að vanda og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Engin kvöldvaka og varðeldur verður í Fagrahvammi á laugardagskvöldi Húnavöku að þessu sinni. Þess í stað verður fjölskylduskemmtun á skólalóðinni á föstudagskvöldinu klukkan 18-21. Kjötsúpa verður í boði Blönduósbæjar og styrktaraðila sem eru SAH Afurðir, MS, N1, Etix Group, Kjötbúðin, Átak, Ísgel og Vilko. Lalli töframaður stýrir kvöldinu. Leikhópurinn Lotta skemmtir, sem og Magni Ásgeirs og hjónin Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirs. Einnig verða umhverfisverðlaun Blönduósbæjar veitt. Þá verða sýndir sýrlenskir dansar og fram fer stórleikur í knattspyrnu milli sveitarstjórnar Blönduósbæjar ásamt ungmennaráði sveitarfélagsins gegn Brunavörnum Austur-Húnavatnssýslu.

Fyrirtækjadagurinn er á föstudaginn en þá bjóða fyrirtæki og stofnanir á Blönduósi gesti velkomna. Átak, Ísgel, Tækniþjónustan Dráttur, Smárabær og Brunavarnir A-Hún. verða með grill, glens og hoppukastala á planinu við Efstubraut 2 klukkan 12-16. Lífland tekur á móti gestum í verslun sinni að Efstubraut 1 og verða Húnavökutilboð á völdum vörum og heitt á könnunni. Brunavarnir A-Hún. verða með opið hús í nýjum húsakynnum að Efstubraut 2 milli klukkan 12 og 16.

SAH Afurðir taka á móti gestum klukkan 13-17 við verslun fyrirtækisins að Húnabraut 39. Grill, kynning á vörum og Húnavökutilboð á grillkjöti. Vilko og Prima taka á móti gestum í húsnæði fyrirtækisins að Húnabraut 33 og verða Húnavökutilboð af völdum vörum.

Fjör verður við Félagsheimilið á laugardaginn klukkan 13:30-16:00. Lalli töframaður kynnir og skemmtir, Slagarasveitin, Sirkus Íslands, Maggi mix og Páll Óskar mæta á svæðið og boðið verður upp á andlitsmálningu og hoppukasala fyrir börnin. Verðlaun verða veitt fyrir best skreytta húsið og flottustu og frumlegustu fígúrurnar, sem og til götunnar með flestar fígúrur. Þá fer fram keppni um sterkasta Blönduósinginn.

Páll Óskar slær svo botninn í dagskrá laugardagsins með stórdansleik í Félagsheimilinu, eða Pallaballi klukkan 20-23. Aðgangseyrir er 4.000 krónur og 18 ára aldurstakmark. Barinn verður opinn.

Sjáðu alla Húnavöku dagskrána, frá fimmtudegi til sunnudags, hér.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið