Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Sunnudagur, 12. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 09:53 0 0°C
Laxárdalsh. 09:53 0 0°C
Vatnsskarð 09:53 0 0°C
Þverárfjall 09:53 0 0°C
Kjalarnes 09:53 0 0°C
Hafnarfjall 09:53 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Fréttir | 15. júlí 2020 - kl. 16:30
Eldurinn tendraður í 18. sinn

Eldur í Húnaþingi er árleg hátíð á Hvammstanga sem hóf göngu sína árið 2003. Dagana 22.-26. júlí næstkomandi verður eldurinn tendraður í 18. sinn. Hátíðin hefur tekið mörgum breytingum frá því hún var fyrst haldin fyrst sem unglistahátíð. Þá var hún bæði skipulögð og framkvæmd af ungi fólki í Húnaþingi vestra. Með tímanum fékk hátíðin á sig fjölskyldu- og bæjarhátíðarblæ og hefur dagskráin verið breytileg með ári hverju en hún ræðst oftar en ekki af áhugasviði stjórnenda.

Í ár hefur ungt fólk tekið við framkvæmdarstjórn hátíðarinnar á ný og þótti því viðeigandi að líta aftur til fortíðar og var innblástur fenginn frá fyrri hátíðum. Gamlir og eftirminnilegir viðburðir verða haldnir á ný ásamt þeim árlegu viðburðum sem hafa einkennt hátíðina alveg frá upphafi.

Eldur í Húnaþingi hefur mikið gildi fyrir íbúa Húnaþings vestra en hátíðin einkennist af mikilli samheldni meðal íbúanna þar sem þátttaka er lykilatriði. Góður andi og brjálað stuð hefur verið ríkjandi á Eldinum alveg frá upphafi og verður hátíðin í ár engin undantekning.

Meðal listamanna sem koma fram í ár eru Ásgeir Trausti, Ingó Veðurguð, Stuðmenn og Paparnir.

Dagkrá Elds í Húnaþingi má sjá hér.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið