Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:21 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:21 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:21 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:21 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:21 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:21 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Húnavökuhátíðin á Blönduósi hefst í dag. Sundlaugin margrómaða á Blönduósi opnaði fyrir gesti klukkan átta í morgun og verður opin til klukkan níu í kvöld. Þar má einnig sjá náttúruljósmyndasýningu Róberts Daníels Jónssonar og kynna sér sögu sundlaugarinnar í máli og myndum í tilefni af 10 ára afmæli hennar í ár. Annars ætla íbúar sveitarfélagsins að skella sér í regngallann í dag og drífa sig út að skreyta hús sín hátt og lágt.
Markmiðið er að fylla bæinn af skemmtilegum og frumlegum fígúrum. Verðlaun verða veitt fyrir best skreytta húsið, frumlegustu og flottustu fígúrurnar og fyrir götuna sem verður með flestar fígúrur. Svo er auðvitað tilvalið að skella í götugrill þegar búið er að skreyta, ef veður leyfir.
Heimilisiðnaðarsafnið verður opið í dag eins og alla daga frá klukkan 10-17. Þar má sjá sérsýninguna Spor sem er textílbókverkasýning eftir Arkir bókverkafélag. Aðgangseyrir er inn á safnið en frítt fyrir yngri en 16 ára. Minjastofa Kvennaskólans og Vatnsdæla á Refli opna klukkan 13 í dag og verður opið til 17. Þá er rétt að minna ferðalanga á Upplýsingamiðstöð ferðamála í Austur-Húnavatnssýslu. Hún verður opin í dag klukkan 10-17. Þar er hægt að kynna sér það sem er í boði á svæðinu.
Í kvöld klukkan 20:30 verður Bjórbingó í Félagsheimilinu á Blönduósi. Í boði eru spennandi vinningar. Aldurstakmark er 18 ár og aðgangseyrir 1.000 krónur. Eitt bingóspjald innifalið. Aukaspjöld kosta 500 krónur stykkið.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |