Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:31 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:31 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:31 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:31 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:31 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:31 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Húnavökuhátíðin heldur áfram í dag en nokkur röskun hefur orðið á viðburðum vegna veðurs. Í dag átti að fara fram golfmót og Blönduhlaup, en svo verður ekki. Sögugangan um gamla bæinn sem fara átti fram í dag hefur verið færð til morguns klukkan 10:30. Knattspyrnuleikurinn milli Brunavarna A-Hún. og sveitarstjórnar Blönduósbæjar ásamt ungmennaráði verður haldinn á morgun á skólalóðinni klukkan 15:30. Eftir leikinn verður vítaspyrnukeppni sem allir geta tekið þátt í.
Fjörið sem átti að vera fyrir framan Félagsheimilið í dag klukkan 13:30-16:00 hefur verið fært inn í Íþróttamiðstöðina. Lalli töframaður kynnir og skemmtir, Slagarasveitin, Sirkus Íslands, Maggi mix og Páll Óskar mæta á svæðið og boðið verður upp á hoppukastala og andlitsmálningu fyrir börnin. Verðlaun verða veitt fyrir best skreytta húsið og flottustu og frumlegustu fígúrurnar, sem og til götunnar með flestar fígúrur. Vatnaboltar verða ekki í boði og engir hestar eins og til stóð vegna veðursins.
Á Blönduósvelli klukkan 17 í dag fer fram leikur í 4. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar tekur á móti knattspyrnuliðinu Birninum. Frítt er á völlinn.
Klukkan 18 hefst sundlaugarpartý í tilefni af 10 ára afmæli sundlaugarinnar á Blönduósi. Maggi Mix þeytir skífur og skemmtir sundlaugargestum. Léttar veitingar og sápukúluvél í gangi.
Orgeltónleikar í Blönduóskirkju
Í dag heldur Lára Bryndís Eggertsdóttir orgeltónleikar í Blönduóskirkju klukkan 17-18. Á þeim má bæði heyra þjóðlagatengda tónlist, meðal annars hið magnaða tónaljóð Moldá (Vltava) eftir tékkneska tónskáldið Bedřich Smetana í umritun fyrir orgel, sem og alíslenska orgeltónlist eftir Vatnsdælinginn Báru Grímsdóttur. Lára Bryndís mun einnig kynna tónlistina og segja frá tilurð íslensku orgelverkanna. Aðgangur er ókeypis á tónleikana.
Páll Óskar slær svo botninn í dagskrá dagsins með stórdansleik í Félagsheimilinu klukkan 20-23.
Sjáðu alla Húnavökudagskrána hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |