Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 21:00 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 21:00 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 21:00 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 21:00 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 21:00 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 21:00 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Inspired by Iceland býður fólki um allan heim að losa um uppsafnaða streitu vegna Covid-19 með því að láta öskur sitt hljóma á Íslandi. Hátölurum hefur verið komið fyrir víðs vegar um landið en hægt er að taka öskrin upp með aðstoð tölvu eða síma á vefsíðunni www.lookslikeyouneediceland.com næstu tvær vikur. Einn hátalari er staðsettur við Kálfshamarsvík á Skaga.
Það verða sjö hátalarar sem koma öskrunum til skila á Íslandi og getur fólk valið um staðsetningu. Hátalararnir eru staðsettir í Viðey í Reykjavík, Festarfjall við Grindavík, í nágrenni Skógarfoss, skammt utan við Djúpavog, við rætur Snæfellsjökuls, við Kálfshamarsvík og við Rauðasand á Vestfjörðum. Notendur fá svo að lokum myndbandsupptöku af því þegar öskrið þeirra „glymur“ á Íslandi. Íslendingar þurfa þó ekki að óttast að gremjuöskur útlendinga skemmi sumarfrí þeirra þar sem hljóðstyrknum er stillt í hóf, að því er segir í tilkynningu frá Íslandsstofu.
Herferðin sem hefur hlotið nafnið „Let It Out“ eða „Losaðu þig við það“ sækir innblástur til kenninga sálfræðinga um streitulosandi áhrif þess að öskra af öllum lífs og sálar kröftum. Í könnun sem framkvæmd var á erlendum mörkuðum fyrir Inspired by Iceland í byrjun júní sögðust 40% aðspurðra finna fyrir streitueinkennum vegna Covid-19, og 37% svöruðu að ástandið hefði haft neikvæð áhrif á sálartetrið. Langvinn innivera, einsemd, endalausir fjarfundir og röskun á daglegu lífi, auk takmarkana á ferðalögum milli landa, hafa aukið streitu fólks. Herferðinni er ætlað að draga fram kosti Íslands sem áfangastaðar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |