Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 21:04 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 21:04 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 21:04 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 21:04 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 21:04 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 21:04 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Margir hrifust af frábærum tónlistarflutningi á tvennum tónleikum sem haldnir voru á Húnavöku. Lára Bryndís Eggertsdóttir hélt orgeltónleika í Blönduóskirkju á laugardaginn en organisti kirkjunnar, Eyþór Franzson Wechner, hefur árlega staðið fyrir viðburðum í kirkjunni í tengslum við Húnavöku. Á þeim mátti heyra þjóðlagatengda tónlist eftir erlenda og íslenska höfunda meðal annars eftir Vatnsdælingurinn Bára Grímsdóttir. Lára Bryndís kynnti tónlistina sem hún flutti og sagði frá tilurð íslensku orgelverkanna.
Lára Bryndís hefur haldið fjölmarga einleikstónleika á orgel, bæði hérlendis og á hinum Norðurlöndunum. Árið 2014 stóð hún fyrir tónlistarverkefninu „Ég heyrði þytinn frá vængjum þeirra“ þar sem sjö íslensk tónskáld sömdu orgelverk að beiðni Láru.
Stofutónleikar í Heimilisiðnaðarsafninu
Stofutónleikar voru haldnir í Heimilisiðnaðarsafninu á sunnudaginn. FUNI sá um tónlistarflutning en tvíekið skipa Bára Grímsdóttir og Chris Foster. Þau fluttu íslensk og ensk þjóðlög sem voru sungin og leikin á gítar, langspil, kantele og shruti box. FUNI hefur starfað síðan 2002 og komið fram víða hérlendis, í Evrópu, Bandaríkjunum og Kína.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |