Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:16 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:16 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:16 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:16 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:16 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:16 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Útsvarstekjur sveitarfélaga hækkuðu hlutfallslega mest á Norðurlandi vestra síðustu sex mánuði frá sama tímabili í fyrra í samanburði við aðra landshluta. Tekjur einstakra sveitarfélaga sveifluðust mismikið til hækkunar og lækkunar. Þannig lækkuðu útvarstekjur Skagabyggðar um 15,5% sem er mesta lækkun á landinu öllu. Samanlagðar útsvarstekjur hjá sveitarfélögunum í Húnavatnssýslum hækkuðu um 9,5% en um 2,3% ef tekur allra sveitarfélaga í landshlutanum er skoðaðar.
Tímabilið sem um ræðir er frá febrúar til júlí síðastliðinni sem er tími kórónuveirufaraldurs og hertra sóttvarnaaðgerða.
Þessar tölur má finna á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga um tekjur sveitarfélaga af staðgreiðslu. Janúar er ekki tekinn með þar sem útsvar sem greitt er í janúar er að mestum hluta lagt á launagreiðslur ársins á undan. Í gögnunum má sjá að útvarstekjur 35 sveitarfélaga jukust á tímabilinu en minnkuðu í 36 sveitarfélögum.
Útsvarstekjur Blönduósbæjar námu 229,2 milljónum síðustu sex mánuði ársins en voru 224,7 á sama tímabili í fyrra og hafa því hækkað um 2%. Í Húnaþingi vestra námu þær 268,6 milljónum en voru 258,1 milljón í fyrra og hækka um 4%. Á Skagaströnd námu þær 137 milljónum en voru 133,3 í fyrra og hækka um 2,8%. Í Húnavatnshreppi námu þær 72,8 milljónum en voru 71,6 og hækka um 1,6%. Útsvarstekjurnar í Skagabyggð námu 14,9 milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins en voru 17,6 á sama tímabili í fyrra og hafa því lækkað um 15,5% eins og áður sagði.
Hvað aðra landshluta varðar þá hækkuðu útsvarstekjur um 1,5% á Vestfjörðum, um 0,1% á Norðurlandi eystra og um 1,2% á Suðurlandi. Útsvarstekjur lækkuðu um 0,7% á Vesturlandi, um 0,2% í Reykjavík, um 2,5% á Suðurnesjum og um 0,1% á Austurlandi. Þannig hækkuðu útsvarstekjur mest á Norðurlandi vestra eða um 2,3%.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |