Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 02:41 0 0°C
Laxárdalsh. 02:41 0 0°C
Vatnsskarð 02:41 0 0°C
Þverárfjall 02:41 0 0°C
Kjalarnes 02:41 0 0°C
Hafnarfjall 02:41 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 12. ágúst 2020 - kl. 09:26
Starf veitustjóra í Húnaþingi vestra laust til umsóknar

Húnaþing vestra auglýsir starf veitustjóra sveitarfélagsins laust til umsóknar. Leitað er eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi  en starfið tilheyrir umhverfissviði og heyrir beint undir sveitarstjóra. Veitustjóri ber ábyrgð gagnvart sveitarstjóra og sveitarstjórn í öllum störfum sínum og ákvörðunum. Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst næstkomandi.

Starfssvið:

  • Ber ábyrgð á framkvæmdum og rekstri hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu en vinnur jafnframt að öðrum tilfallandi verkefnum í samráði við rekstrarstjóra
  • Er yfirmaður annarra starfsmanna veitna
  • Vinnur að undirbúningi fjárhagsáætlana fyrir veitur í samvinnu við framkvæmdaráð og aðra starfsmenn sveitarfélagsins eftir því sem við á
  • Hefur eftirlit með ástandi veitukerfa og tryggir viðhald þess
  • Ber ábyrgð og eftirlit með öryggismálum sem snerta veitur
  • Verkefnastjórn sérverkefna, s.s. ljósleiðara
  • Stefnumótun veitumála sveitarfélaginu í heild í samstarfi við sveitarstjórn og sveitarstjóra
  • Samskipti og upplýsingagjöf til viðskiptavina og íbúa sveitarfélagsins

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Iðnmenntun og/eða tæknimenntun er æskileg
  • Reynsla á sviði veitna og  framkvæmda er nauðsynleg
  • Reynsla af áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðaráætlunum
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
  • Forystu- og skipulagshæfileikar
  • Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð tölvukunnátta

Umsóknum um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst næstkomandi.

Umsóknir skulu berast á netfangið rjona@hunathing.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri í síma 455-2400.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið