Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Sunnudagur, 19. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:06 0 0°C
Laxárdalsh. 01:06 0 0°C
Vatnsskarð 01:06 0 0°C
Þverárfjall 01:06 0 0°C
Kjalarnes 01:06 0 0°C
Hafnarfjall 01:06 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
17. maí 2024
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Fréttir | 19. ágúst 2020 - kl. 08:32
Gæsaveiðitímabilið að hefjast

Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst á morgun, 20. ágúst og stendur til 15. mars. Algengt er að veiðimenn bíði með gæsaveiði þar til í september ekki síst í ljósi þess að þá er einnig heimilt að hefja veiðar á þeim andategundum sem veiddar eru. Fjöldi veiðimanna fer hins vegar til veiða fyrstu dagana, sérstaklega þeir sem veiða heiðagæsir.

Á vef Umhverfisstofnunar segir að grágæs og heiðagæs hafi fjölgað á undanförnum árum samkvæmt talningum og hækkandi veiðitölur endurspegli gott ástand á gæsastofnum. Veiðimenn eru minntir á að óheimilt er að skjóta ófleyga fugla og hafa ber í huga að búast má við ófleygum gæsaungum á fyrstu dögum veiðitímabilsins. Veiðimenn eru ennfremur minntir á alfriðun blesgæsar en hún hefur verið friðuð síðan 2003.

Á vef Húnaþings vestra hefur verið birt fyrirkomulag gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins og verður það eftirfarandi hætti haustið 2020:

1. Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða leyfi á þrjú svæði.

Svæðin eru: 

  1. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði austan Víðidalsár ásamt jörðinni Öxnatungu.
  2. Víðidalstunguheiði vestan Víðidalsár ásamt jörðunum Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Króki.
  3. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.

2. Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess gæsaveiðitíma sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2020. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma.

3. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000,- á dag.

4. Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum.   Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

5. Með vísan til 7. greinar Fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra er óheimilt að nýta hunda og flygildi (dróna) til veiða fyrr en fyrstu göngum á viðkomandi afrétti er lokið.

6. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.  

Kort af veiðisvæðum má finna hér:

Gæsaveiðisvæði 1 og 2 - Víðidalstunguheiði

Gæsaveiðisvæði 3 - Arnarvatnsheiði og Tvídægra

Veiðisvæði miðast eingöngu við eignarlönd sveitarfélagsins. Athugið að nokkrar ónákvæmni gætir í kortunum, unnið er að gerð nýrra korta.

Veiðileyfi verða eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli sími 451 2566. Netfangið er daeli@daeli.is. Allar upplýsingar um gæsaveiðar á þessu svæði eru veittar í Dæli.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið