Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 03:56 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 03:56 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 03:56 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 03:56 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 03:56 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 03:56 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Brúðulistahátíðin Hvammstangi International Puppet Festival verður haldin 9.-11. október næstkomandi. Á hátíðinni verður boðið upp á tólf sýningar með listamönnum af níu þjóðernum og verða meira en 60% viðburða ókeypis fyrir áhorfendur. Þá verður í boði úrval vinnusmiðja fyrir fólk á öllum aldri, bæði fyrir byrjendur og atvinnumenn og úrval brúðubíómynda sem eru sérvaldar af Handmade Puppet Dreams sem er fyrirtæki Heather Henson í Bandaríkjunum.
Alla dagskrá hátíðarinnar má sjá hér: www.thehipfest.com.
Verðlaunaleikhúsið Handbendi Brúðuleikhús stýrir brúðulistahátíðinni HIP á Hvammstanga.
Hátíðin er haldin annað hvert ár og býður m.a. upp á:
- Uppfærslur á litlum – miðlungsstórum verkum eftir heimafólk og alþjóðlega listamenn fyrir bæði börn og fullorðna.
- Lifandi tónlistarviðburði.
- Masterclass fyrir fagmenn og áhugasama um brúðugerð.
- Sýningar og smiðjur fyrir börn og fullorðna.
- Leikbrúðu-stuttmyndir og myndir í fullri lengd.
- Fyrirlestrar og viðburðir til tengslamyndunar, þar á meðal UNIMA "focus group"
Handbendi brúðuleikhús hefur einnig verið með sýningar, viðburði og smiðjur á Íslandi og víðsvegar í heiminum, og öll vinna farið fram í vinnustofu Handbendi brúðuleikhúss á Hvammstanga.
Styrktaraðilar HIP eru: RANNÍS, Barnamenningarsjóður, Hótel Laugarbakki, UNIMA Íslands, Sjávarborg, Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra og Húnaþing vestra.
COVID-19 YFIRLÝSING frá HIP:
Heilsa og velferð íbúa, gesta og listamanna er okkar forgangsmál. Við höfum gripið til, og munum halda áfram að grípa til, allra nauðsynlegra ráðstafana í samræmi við fyrirmæli embættis landlæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.
Eins og staðan er í dag þá uppfyllir HIP öll skilyrði. Skyldu aðstæður breytast hér á landi eða í upprunalöndum alþjóðlegra gestalistamanna, bregðumst við að sjálfsögðu við því.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |