Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:42 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:42 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:42 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:42 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:42 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:42 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti á föstudaginn skýrslu starfshóps um áhrif Covid-19 á fjármál sveitarfélaga. Starfshópurinn áætlar að verulegur samdráttur verði í tekjum flestra sveitarfélaga miðað við áætlanir og að neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu þeirra nemi alls rúmlega 33 milljörðum króna.
Í niðurstöðum starfshópsins segir að gera megi ráð fyrir að samanlögð rekstrarniðurstaða sveitarfélaganna allra verði 26,6 milljörðum lakari en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlunum ársins 2020. Þá megi búast við að auknar fjárfestingar sveitarfélaga nemi rúmlega 6,5 milljörðum króna. Samanlagt væru áhrifin því rúmlega 33 milljarðar króna eða rúmlega 91 þúsund króna á hvern íbúa.
Í skýrslunni segir að til að setja þessar tölur í samhengi hafi heildarútgjöld sveitarfélaganna árið 2019 verið rúmlega 390 milljarðar króna. Áhrifin nemi því 8,5% af heildarútgjöldum sveitarfélaga frá árinu 2019 eða um 1,1% af vergri landsframleiðslu sama ár. Hér væru því um verulegar upphæðir að ræða í þjóðhagslegu tilliti.
Starfshópurinn áætlar að útsvarstekjur sveitarfélaganna, stærsti einstaki tekjustofn þeirra, muni dragast verulega saman. Sveitarfélögin hafi gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlunum sínum að útsvarstekjur ársins myndu nema rúmlega 223 milljörðum króna en samkvæmt þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir má ætla að útsvarstekjurnar verði nokkuð minni eða um 212 milljarðar króna.
Skýrsluna má lesa hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |