Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 20:34 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 20:34 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 20:34 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 20:34 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 20:34 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 20:34 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Menningar-, tómstunda- og íþróttanefnd Blönduósbæjar telur að aldursskipting í ungmennaráði sveitarfélagsins uppfylli skilyrði sem sett eru fram af umboðsmanni barna um aldursskiptingu. Ungmennaráðið er samsett af fimm fulltrúum og er skiptingin þannig að þrír koma úr 8.-10. bekk Blönduskóla og tveir eru á aldrinum 16-25 ára. Embætti umboðsmanns barna sendi í síðasta mánuði bréf til allra sveitarfélaga þar sem minnt var á hlutverk og tilgang ungmennaráða og sérstaklega mikilvægi þess að í þeim sitji fulltrúar yngri en 18 ára.
Í nýlegri rannsókn um ungmennaráð sveitarfélaga kemur fram að 44 af 51 ungmennaráðum í sveitarfélögum landsins hafa verið skipuð, að hluta til eða jafnvel að öllu leyti, ungu fólki sem er 18 ára eða eldra. Í bréfinu segir að ákveðin hætta sé á að hagsmunir yngri hópsins fái minni vægi í ungmennaráðum sem hafi breiða aldurssamsetningu enda geti það reynst börnum erfitt að láta til sín taka í félagsstarfi með fullorðnu fólki þar sem til staðar er augljós aðstöðumunur sem felst í auknum þroska og lífsreynslu þeirra fullorðnu.
Í fundargerð menningar-, tómstunda- og íþróttanefnd Blönduósbæjar frá 31. ágúst síðastliðnum kemur fram að nefndin telji mikilvægt að halda þessari aldursskiptingu til þess að ungmenni á aldrinum 16 til 25 ára hafi sína rödd í samfélaginu í gegnum ungmennaráðið.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |