Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:17 0 0°C
Laxárdalsh. 13:17 0 0°C
Vatnsskarð 13:17 0 0°C
Þverárfjall 13:17 0 0°C
Kjalarnes 13:17 0 0°C
Hafnarfjall 13:17 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Ljósm: stjornarradid.is
Ljósm: stjornarradid.is
Fréttir | 09. september 2020 - kl. 20:28
Íslenskt - láttu það ganga

„Frá bakara til forritara. Frá forritara til hönnunar. Frá hönnun til bænda. Frá bónda til bakara. Frá þér til þín. Þannig gengur þetta – frá þér til þín í stöðugri hringrás.“ Þetta er á meðal þess sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið ásamt Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samorku og Bændasamtökum Íslands, vilja minna landsmenn á í kynningarátakinu Íslenskt – láttu það ganga sem fór af stað í dag. Tilgangur átaksins er að hvetja landsmenn, almenning og fyrirtæki til viðskipta við innlenda aðila á fjölbreyttum sviðum, við val á framleiðslu, vörum og þjónustu.

„Með þessu átaki minnum við á ágæti íslenskrar framleiðslu og þjónustu og tökum höndum saman við atvinnulífið við að sporna gegn áhrifum COVID-19,“ segja Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

„Íslenskt efnahagslíf hefur orðið fyrir miklu höggi undanfarið og átakið er einn liður í því að bregðast við - bretta upp ermar og koma því í gang að nýju. Við viljum fá þjóðina í lið með okkur,“ segir Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í sömu tilkynningu.

Íslendingar eru hvattir til að velja íslenska verslun, framleiðslu, hugvit og upplifanir. Með vali á innlendri framleiðslu- og þjónustustarfsemi verður til hringrás sem stuðlar að nýjum störfum, verðmætasköpun og efnahagslegum stöðugleika.

„Með samtakamætti okkar allra getum við staðið vörð um íslenska framleiðslu og þjónustu. Saman látum við þetta ganga og það skilar sér aftur til þín, mín og okkar allra,“ segir Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið