Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:22 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:22 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:22 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:22 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:22 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:22 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarstjórnir Húnaþings vestra, Dalabyggð, Strandabyggðar og Reykhólahrepps hafa sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda og seinagangi við birtingu afurðastöðvaverðs haustið 2020. Ályktunin hefur verið send til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þingmanna Norðvesturkjördæmis, atvinnumálanefndar Alþingis, Bændasamtaka Íslands, Landssamtaka sauðfjárbænda og afurðastöðva landsins.
Ályktuninni segir:
Sauðfjárrækt er mikilvæg búgrein þessara sveitarfélaga og ein af forsendum búsetur í dreifbýli. Í þessum sveitarfélögum var rúmlega 21% af framleiðslu kindakjöts árið 2019.
Á undanförnum árum hafa orðið ábúendaskipti á þónokkrum bújörðum í sveitarfélögunum og yngra fólk með fjölskyldur tekið við. Þessar fjölskyldur efla samfélagið, styðja við þjónustu ásamt því að halda upp atvinnustigi.
Líkt og í öðrum rekstri er mikilvægt að sauðfjárbændur fái viðunandi verð fyrir sína vöru og hafi þannig forsendur til áætlanagerðar og ákvarðanatöku. Því er skorað á afurðastöðvar að gefa út afurðaverð 2021 fyrir komandi áramót.
Samkvæmt samantekt Landssamtaka sauðfjárbænda var afurðaverð til íslenskra sauðfjárbænda á síðasta ári það lægsta sem finnst í Evrópu og miðað við nýbirtar verðskrár 2020 er vegið meðalverð 502 kr./kg. Hefði afurðaverð fylgt almennri verðlagsþróun frá 2014 ætti það að vera 690 kr./kag. Því vantar enn tæpar 200 kr./kg. upp á að afurðastöðvaverð fylgi verðlagsþróun.
Í heimsfaraldri vegna COVID-19 fengu Íslendingar áminningu um mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu. Skapa þarf greininni stöðugleika í rekstri til lengri tíma og styðja á öflugan hátt við innlenda matvælaframleiðslu.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |