Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 18. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:36 0 0°C
Laxárdalsh. 13:36 0 0°C
Vatnsskarð 13:36 0 0°C
Þverárfjall 13:36 0 0°C
Kjalarnes 13:36 0 0°C
Hafnarfjall 13:36 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
17. maí 2024
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Fréttir | 04. nóvember 2020 - kl. 10:59
Breyting á aðalskipulagi Blönduósbæjar

Á vef Blönduósbæjar er að finna skipulagsauglýsingu þar sem verið er að auglýsa tillögur að breytingum á aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030. Breytingarnar varða legu Þverárfjallsvegar norðaustur af Blönduósi, fjölgun efnistökusvæða á Sölvabakka, stækkun sorpförgunarsvæðis og rekstur brennsluofns í Stekkjarvík og legu reiðleiðar innan þéttbýlisins á Blönduósi.

Þá er auglýst tillaga að breytingum á deiliskipulaginu Stekkjarvík – Urðun og efnistaka, sem snýr að því að auka urðun á svæðinu sem og að bæta við brennsluofni og gassöfnunarblöðru sem þýðir stækkun svæðisins, breytta afmörkun og breytingar á texta í deiliskipulaginu.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 17. desember næstkomandi. Skila þarf athugasemdum skriflega á skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi eða með tölvupósti á netfangið blonduos@blonduos.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni, að því er segir á vef Blönduósbæjar og hér má finna nánari upplýsingar eins og greinargerðir og uppdrætti vegna tillagnanna.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið