Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:58 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:58 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:58 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:58 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:58 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:58 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Þorgerður J. Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, og fulltrúar á vegum Textílmiðstöðvar Íslands og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands eru meðal þátttakenda í alþjóðlega verkefninu CENTRINNO sem nýlega hlaut 8,2 milljón evra styrk (1,3 milljarður ISK) úr Horizon 2020 áætlun Evrópusambandsins. Í hlut Háskóla Íslands koma tæpar 28 milljónir en heildarstyrkur íslensku þátttakendanna er í kringum 130 milljónir íslenskra króna.
CENTRINNO stendur fyrir New CENTRalities in INdustrial areas and engines for inNOvation and urban transformation. Markmið verkefnisins er að endurvekja hnignandi en menningarsögulega mikilvæg iðnaðarsvæði í Evrópu þar sem störfum hefur fækkað og umhverfi er á fallanda fæti. Nýsköpunar- og þekkingarmiðstöðvum verður komið á fót og verður þeim ætlað að mæta helstu umhverfisáskorunum samtímans, efla fjölbreytt og skapandi þekkingarhagkerfi og nýta fyrirliggjandi menningararf kvenna og karla sem hvata fyrir nýsköpun og félagslega þátttöku í anda hringrásarhagkerfis og sjálfbærni.
Að verkefninu standa 26 stofnanir og fyrirtæki í níu löndum og verða miðstöðvarnar staðsettar í Amsterdam, Barcelona, Genf, Kaupmannahöfn, Mílanó, París, Tallinn, Zagreb og á Blönduósi. Þar verður sett á fót miðstöð nýsköpunar og þekkingar í stafrænni textílframleiðslu sem byggð er á menningararfi og handverkskunnáttu íslenskra kvenna með sérstakri áherslu á ull og umhverfisvæna nýtingu hennar.
Verkefnið hófst 1. september 2020 og stendur yfir í 3½ ár. Því er stýrt frá Mílanóborg og verkefnisstóri er Roberto Nocerino. Þorgerður J. Einarsdóttir mun ásamt Laufeyju Axelsdóttur, nýdoktor í kynjafræði, kanna og kortleggja umgjörð, bakgrunn og sögu textíliðnaðar á Íslandi. Í því felst að skoða núverandi landslag á sviði textíls, þróun í sögulegu samhengi, samfélagslegt umfang og mikilvægi, menningarlegar rætur og kynjasjónarmið. Skoðað er hvernig hefðir og menningararfleifð geta verið innblástur og hvati til endursköpunar á nýjum tímum og í nýju samhengi. Meðal annars er spurt hvernig textíllinn og handverkið geta tekið skrefið inn í framtíðina á umhverfisvænan og sjálfbæran hátt, að því er segir í tilkynningu frá HÍ.
-Fréttin hefur verið uppfærð
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |