Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:38 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:38 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:38 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:38 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:38 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:38 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Byggðarráð Húnaþings vestra hvetur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að gera nauðsynlegar breytingar á lögum til að lengja megi lögveð fasteignagjalda. Þannig væri hægt að koma í veg fyrir að sveitarfélög þurfi að ganga að fyrirtækjum og einstaklingum sem mögulega lenda í greiðsluerfiðleikum vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins.
Þetta kemur fram í fundargerð byggðarráðs síðan í gær. Til umræðu á fundinum var bréf sem Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa sent byggðarráði, fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar og Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu. Í bréfinu er óskað er eftir niðurfellingu fasteignagjalda, frestun á gjöldum eða lengingu á lögveði fasteignaskatta, til að styðja við atvinnurekendur í ferðaþjónustu.
Byggðarráðið bendir á í bókun að fasteignagjöld séu hluti af lögbundnum tekjum sveitarfélaga sem þau megi hvorki né geti afsalað sér. Auk þess sé lítið svigrúm til að bregðast við og heimila frestun fasteignagjalda. Þá segir að breytingar á fasteignagjöldum verði ekki ræddar án aðkomu Sambands íslenskra sveitarfélaga og löggjafavaldsins.
„Í ljósi aðstæðna í samfélaginu hvetur byggðarráð samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að gera nauðsynlegar breytingar á lögum til að lengja megi lögveð fasteignagjalda. Þannig væri hægt að koma í veg fyrir að sveitarfélög þurfi að ganga að fyrirtækju og einstaklingum sem mögulega lenda í greiðsluerfiðleikum vegna áhrifa COVID-19,“ segir í bókun fundarins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |