Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 4. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:30 0 0°C
Laxárdalsh. 14:30 0 0°C
Vatnsskarð 14:30 0 0°C
Þverárfjall 14:30 0 0°C
Kjalarnes 14:30 0 0°C
Hafnarfjall 14:30 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Fréttir | 17. nóvember 2020 - kl. 09:24
Dregið úr samkomutakmörkunum 18. nóvember
Grímuskylda afnumin í 5.-7. bekk grunnskóla

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis sem fela í sér varfærnar tilslakanir á gildandi samkomutakmörkunum. Breytingarnar taka gildi 18. nóvember. Þær eru helstar að íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður heimilt á ný. Í framhaldsskólum verða fjöldamörk aukin í 25. Hægt verður að hefja ýmsa þjónustustarfsemi sem krefst snertingar eða mikillar nándar. Almennar fjöldatakmarkanir miðast áfram við 10 manns. Gert er ráð fyrir að hægt verði að draga enn frekar úr samkomutakmörkunum í byrjun desember.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis til ráðherra leggur hann til að hægt verði farið í allar tilslakanir á næstunni. Breytingarnar sem taka gildi miðvikudaginn 18. nóvember eru eftirfarandi:

  • Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar milli fólks verður leyfð með þeim skilyrðum að notast sé við andlitsgrímur. Þetta á við um s.s. hárgreiðslustofur, nuddstofur, öku- og flugkennslu og sambærilega starfsemi. Hámarksfjöldi viðskiptavina á sama tíma er 10 manns.
  • Æfingar, íþróttastarf, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt jafnt inni og úti. Til að slíkt starf geti farið fram eru engar takmarkanir settar varðandi blöndun milli hópa. Fjöldamörk í hverju rými fara eftir reglugerð um takmarkanir á skólastarfi. Leikskólabörn og börn í 1.–4. bekk grunnskóla mega vera 50 saman að hámarki en nemendur í 5.–10. bekk að hámarki 25 saman.
  • Í skólastarfi á framhaldsskólastigi mega nemendur og starfsmenn vera að hámarki 25 í hverju rými í stað 10 áður en ber að nota andlitsgrímur sé ekki unnt að halda 2 metra fjarlægð.
  • Veitt er undanþágu frá grímuskyldu þeim sem ekki geta notað grímur, t.d. af heilsufarsástæðum eða ef viðkomandi skortir þroska eða skilning til að bera grímu. Þeir sem fengið hafa COVID-19 eru einnig undanþegnir grímuskyldu geti þeir sýnt gilt vottorð þess efnis.

Á vef Stjórnarráðsins má finna reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólahaldi vegna farsóttar sem taka gildi 18. nóvember hafa verið sendar til birtingar í Stjórnartíðindum. Gildistími þeirra er til og með 1. desember næstkomandi.

Grímuskylda afnumin í 5.-7. bekk grunnskóla
Börn í 5.-7. bekk grunnskóla verða undanþegin grímuskyldu og tveggja metra nálægðartakmörkunum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn. Grímuskylda kennara gagnvart þessum börnum verður einnig afnumin. Skýrt verður kveðið á um að á útisvæðum leik- og grunnskóla séu engar kröfur sem hindra blöndun hópa, né kröfur varðandi fjöldatakmarkanir, nálægðartakmarkanir eða grímunotkun. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þetta í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Reglugerðarbreyting þessa efnis verður birt í Stjórnartíðindum á morgun.

Sjá nánar vef vef Stjórnarráðsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið