Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:43 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:43 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:43 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:43 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:43 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:43 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Samstarfsnefnd um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórna sveitarfélaganna. Nefndin kom saman á þremur bókuðum fundum, en nefndarmenn höfðu áður skipað verkefnahóp sem falið var að skoða möguleika á sameiningu sveitarfélaganna. Það er álit nefndarinnar að fram skuli fara atkvæðagreiðsla meðal íbúa um sameininguna. Jafnframt leggur nefndin til að henni verði falið að undirbúa atkvæðagreiðslu og kynna tillöguna og helstu forsendur fyrir íbúum.
Álit samstarfsnefndarinnar var tekið fyrir á sveitarstjórnarfundi Húnabyggðar í gær. Þar samþykkti sveitarstjórn að atkvæðagreiðsla um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar fari fram í samræmi við tillögur samstarfsnefndarinnar og fól nefndinni að undirbúa atkvæðagreiðsluna og kynningu fyrir íbúa.
„Sveitarstjórn Húnabyggðar tekur undir mat samstarfsnefndar, að undangengnu ítarlegu samráði og greiningu samstarfsnefndar, að það væri framfaraskref að sameina sveitarfélögin í eitt sveitarfélag. Þannig verður til öflugt sveitarfélag með aukinn slagkraft, sterkari rekstrargrundvöll og tækifæri til að bæta þjónustu við íbúa,“ segir í fundargerð sveitarstjórnar.
Gert er ráð fyrir að kosningin fari fram á tímabilinu 8. júní til 22. júní næstkomandi. Kosningaaldur mun miðast við 16 ár.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |